fimmtudagur, 26. apríl 2012

Fréttir úr rigningunni

Ekki leikur veðrið við okkur og Bretana frekar en oft áður.  Hér rignir og rignir og rignir....Iðunn hefur ekki notað aðra skó en stígvélin sín síðan við komum, og við erum öll orðin hálf gegnsósa, og enn sannfærðari um að allt sé best á Íslandi.  Í dag rigndi svo mikið að vegum var lokað og við vorum heila eilífð að feta okkur heim eftir bakstigum Durham sýslu.
Iðunn fyrir utan leikskólann sinn
Annað er helst í fréttum að Iðunn er að fara að byrja á Yellow Wellies, gamla leikskólanum sínum sem hún hætti á í desember 2009.  Við fórum í heimsókn á þriðjudaginn, og þó hún hefði verið smeyk í fyrstu glaðnaði yfir henni þegar hún sá dótið og eftir klukkutíma heimsókn með mömmu og pabba fékkst hún vart til að fara.  Í dag fór hún svo og var ein í tvo tima og allt gekk vel; á morgun eru það þrír tímar, og svo er hún alveg byrjuð.  Hún mun vera þarna 3 daga í viku, miðvikudag-föstudag, sömu daga og Alice vinkona sem hún er einmitt búin að fá að hitta og leika sér við í vikunni. Ég held að það muni vera gott fyrir hana að hafa börn til að leika sér við, þó það verði eflaust erfitt í fyrstu að vera hálf mállaus í skólanum - sérstaklega fyrir Iðunni mína sem er svo áköf að tjá sig. 

Iðunn og Alice
Mamman er enn hálf ósátt við að vera farin að vinna, og sér það alltaf betur og betur hve samfélagið á Íslandi er betra fyrir fjölskyldulífið. Þrátt fyrir þetta fer þó ágætlega um okkur og Helgi er að standa sig vel í barnauppeldinu á meðan frúin er í vinnu.

Stelpur í mömmuvinnu
Gerður er glöð og góð að venju en alltaf óskup fegin að sjá mömmuna sína eftur eftir vinnudaginn.  Spónamatur er aldrei jafn góður og mömmumjólk!

Engin ummæli: