mánudagur, 23. apríl 2012

Fyrsti vinnudagurinn



Nú er fyrsti vinnudagurinn liðinn.  Allt gekk vel heima - Gerður borðaði og drakk; Iðunn á enn svoldið erfitt en hafði samt frá mörgu að segja þegar ég kom heim.  Þau höfðu farið á róló og kaffihús.  Ég náði að vinna vel þrátt fyrir vöðvabólgu og hausverk og var komin heim upp úr kl 16 (var mætt 07,40).  Nú eru allir algjörlega búnir eftir langan og erfiðan dag - stelpurnar voru sofnaðar  kl 19 og mig grunar að Helgi sé sofnaður líka.  Á morgun er heimsókn á nýja leikskólann.....

Helgi var sofnaður!

Engin ummæli: