Í dag var fyrsti dagur Iðunnar á leikskólanum í rúman mánuð og allt gekk vel. Daman muldraði aðeins þegar átti að skilja hana eftir, en var búin að jafna sig áður en ég komst út úr húsinu, og þá tók víst við endalaus leikur og gleði og bara voða skemmtilegt að vera komin aftur til krakkanna - mér skilst að hún hafi brosað út að eyrum allan daginn, sem er náttúrulega bara yndislegt. Helgi fór til Hull og átti góðan dag þar, og ég kenndi þriðja árs nemum allt um neanderdalsmenn.
Þegar heim var komið þurfti mikið að stússa við að keyra Elvis í vagninum um alla stofu, áður en örþreytt lítil dama sofnaði á 2 mínútum í rúminu sínu eftir langan og skemmtilegan dag.
1 ummæli:
Mikið er hún maddömuleg í barnfóstruhlutverkinu stelpan mín.
Amma G
Skrifa ummæli