
19.janúar, afmælisdagur (lang)ömmu Stínu
Gleðilegt ár!
Þá erum við komin aftur til Englands eftir heilan mánuð á eyjunni fögru. Ferðalagið gekk svona so-so......eða eins vel og hægt er þegar lítil dama ælir yfir mömmu sína einu sinni á leiðinni til Keflavíkur og þrisvar á leiðinni til Stansted. Ég þakka bara fyrir að hafa lent á skilningsríkum flugfreyjum, og að amma Fanney hafi verið tilbúin til að þrífa illalyktandi polla úr bílnum sínum eftir ömmustelpuna.
Við áttum alveg yndislega daga á Íslandi. Hittum marga en því miður ekki alveg alla. Skoðuðum slatta af nýjum börnum, þar á meðal Maríu Dís hjartastelpu og tvíbura Þórhalls og Hildar. Nutum þess að taka lífinu með ró og eiga góðar stundir saman sem fjölskylda og leyfa stelpunni okkar að kynnast öllu þessu góða fólki sem í kringum okkur er. Iðunn dafnaði eins og blómi í eggi við alla þessa athygli og tók risa stökk fram á við í þroska. Mamman naut þess í botn að fá smá frí frá myndavélinni og Iðunnar blogginu og er til í slaginn á ný.
Nóg í bili, meira á morgun.
1 ummæli:
Hér er mikil sorg og sút að missa litlu ömmustelpuna út í heim. Strax farin að telja niður til 11.mars, þegar við hittumst næst.
Amman í turninum
Skrifa ummæli