Síðasta hitabylgjukvöldið skruppum við í garðboð hjá Donnu. Við sátum úti með osta, salat, hvítvín, brauð og ný ensk jarðarber, og Iðunn lék á alls oddi þó komið væri fram á kvöld. Hún fór með fína Siver Crossinn svo hún gæti sofnað á leiðinni heim, og sat eins og drottning á leið sinni í gegnum bæinn, með dúkku uppá arminn, og fínu sængina og sængurverið frá ömmu FK yfir sér, alveg í stíl við vagninn.
Yndislegt kvöld!
1 ummæli:
Þetta hefur verið konungleg skrúðganga um bæinn. Iðunn í flotta vagninum sínum örugglega veifandi til mannfjöldans :)
Skrifa ummæli