mánudagur, 22. júní 2009

Ekki að standa mig...


Þetta gengur ekki lengur - bloggletin alveg að drepa mömmuna og enginn til að hlaupa undir bagga með henni! En maður má ekki valda ömmunum (og öðrum Iðunnaráhangendum) vonbrigðum í heila viku, svo það er kominn tími á nýtt blogg.


Hér er sumarveðrið loks komið aftur - reyndar skýjað og lítil sól, en þó 22C og hægt að vera sokkabuxnalaus og í sumarpilsum. Iðunn á nýtt doppu-sumarpils sem kostaði heil 6 pund og hún er svo hrifin af að hún hrópaði upp yfir sig um leið og hún var komið í það - Vááááá mamma vááááá! Við mæðgurnar römbuðum niðrí bæ eftir vinnu í dag og lékum okkur á túninu niðri við ánna. Það var svo yndislegt eftir alla prófvinnuna að eyða nokkrum tímum ein með Iðunninni minni, skemmtilegu stelpunni sem ég hef þurft að vera frá alltof alltof mikið vegna vinnu. Hún er að ganga í gegnum svo miklar breytingar - hætt að vera smábarn og orðin lítil stelpa sem getur tjáð sig og er svo afskaplega spennt fyrir öllum sköpuðum hlutum, en þó sérstaklega grísum og bókum. Bókaáhuginn er reyndar alveg að drepa okkur foreldrana, því barnið á ekki nema svona 20 bækur, og þar sem lesnar eru svona 50 bækur á dag erum við orðin ansi leið á því sem til er...en auðvitað gaman að hún skuli hafa svona mikinn bókaáhuga - hann afi Bragi hefði verið ánægður með hana!
Nóg í bili - túdílú!
PS Að neðan má sjá stolta pabbann með feðradagskortið sem Iðunn föndraði í leikskólanum - engin kort eru jafn flott og Iðunnarkort!

3 ummæli:

amma fk sagði...

Vááááá Iðunn vááááá! Hvað þú ert flott stelpa. Óskaplega verður gaman að fá ykkur heim og fá að fylgjast með ömmustelpunni.

St.Pie sagði...

hæhæ, hef verið að kíkja á bloggið og það sem stendur upp úr, auk orðheppni þinnar og fantagóðra mynda, er að sjálfsögðu fegurð barnsins þíns. langar að hitta hana og sjá hana með eigin augum sanna gáfur og skemmtilegheit sín, en þetta tvennt eru jú fylgifiskar fegurðar.

ég finn ekki emailið þitt, þú veist etv mitt og sendir mér línu? mér brá þegar ég sá konu nokkra á myndunum þínum sem ég þekki ... mér er nefnilega ofur vel við uglukonu eina hér í bæ, og hef dvalið "hjá henni" eða þannig, en þú vissir það kannski? :)

kveðja,
steinunn björk x

Nafnlaus sagði...

Takk, takk fyrir nýtt blogg og nýjar myndir. Þú veist hvað ömmurnar eru þurfandi fyrir fréttir af litlu stelpunni. Sú er flott í nýja skræpupilsinu sínu.

Amma G