Heil vika síðan bloggað var síðast enda húsmóðirin búin að fara yfir hundruðir prófa síðustu daga. Þá var nú gott að hafa ömmu Gobbu hér til að létta undir og skemmta Iðunni og foreldrunum. Aldrei þessu vant var lítið farið í búðir enda gengi krónunnar ekki beint björgulegt, en þess í stað farið á marga rólóa og kaffihús. Við vorum líka svo heppin að veðrið lék við okkur fyrstu 5 dagana sem bætti upp rigninguna næstu fimm!
Iðunn og eplafamilían voru leið að skilja við ömmu á lestarstöðinni - Iðunn starði furðu lostin á lestina sem hrifsaði ömmu á brott og veifaði á eftir henni - ekki alveg að skilja af hverju amma var étin af þessum járndreka!
Annars erum við að fara að undirbúa Svíaríkisferð í brúðkaup Louise og Henrik 27.júní, og svo er planið að fara heim til Íslands aðra vikuna í júlí - gaman gaman!!
2 ummæli:
Gaman, gaman nú fer að styttast í Íslandsferðina. Verst að þið missið af afmælinu mikla.
Amman í turninum saknar ykkar allra, en mest litlu ömmustelpunnar sinnar, sem er svo gott að knúsa.Takk fyrir skemmtilegan tíma saman.
Skrifa ummæli