sunnudagur, 14. júní 2009

Helgarblogg



Það rættist nú heldur betur úr helginni hérna í Barnard Castle. Spáð hafði verið rigningu alla helgina, en svo rann upp fagur laugardagur, sólríkur og fínn, svo við nýttum tækifærið og fórum í smá bíltúr uppí sveit. Ferðinni var heitið til Blanchland, sem er lítið þorp í um 40km fjarlægð frá Barnard Castle. Þar er lítil umferð, skemmtilegur róluvöllur, og pöbb með stórum garði þar sem litlar stelpur geta hlaupið um á meðan pabbi sötrar bjór og mamma appelsínusafa. Iðunn fékk ís úr vél í fyrsta sinn og líkaði MJÖÖÖG vel!

Á leiðinni heim kíktum við við hjá Daníel vini okkar, og vörðum svo síðasta vökutíma Iðunnar í garðinum í Victoria Road sem nú er orðinn svo fínn.
Dagurinn í dag var ekki síðri. Fréttir bárust af úrhellisrigningu allt í kringum okkur, allt á floti í Durham, og Sunderland og jafnvel Staindrop sem er bara í 5km fjarlægð, en rigningin kom aldrei til Barnard Castle. Núna, rétt fyrir kl. 20 er enn sól og rúmlega 20C. Yndislegt. Við erum búin að vera mikið úti við og Iðunn var orðin ansi lúin, en náði nú samt að stinga af útí garð berfætt í náttfötunum eftir kvöldbaðið - hún er frá á fæti þó leggirnir séu stuttir!


Annars er það helst í fréttum að við höfum keypt miða til Svíþjóðar í brúðkaup Louise og Henrik, og förum við þangað 25.júni - gaman gaman!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaman hjá ykkur í góða veðrinu. Líka gaman hér, en ekki eins gott veður. Er búið að panta farið til Íslands?
Óþolinmóða amman

Nafnlaus sagði...

sumarleg og sæt! :)

kv,
Hildur