Hér ríkir greinilega bloggleti.....voða lítið bloggað milli helga, aðallega vegna þess að mamman er alltaf uppgefin eftir vinnudaginn og lítið er tekið af myndum í haustmyrkrinu á kvöldin. Náði þó þessari af Iðunni að lesa umferðarreglurnar í vikunni.
Hið helsta í Iðunnarfréttum....bílferðir eru orðnar ABBA ferðir, meiji múshik mamma, meiji múshik.... Iðunn er líka hætt að vera hrædd við Mikka ref í Hálsaskógi og biður nú bara um meiji afi meiji músin gáta (vísar í vesalings Martein mús hræddan eftir ásókn rebba gamla og Iðunn heldur fram að hann sé að gráta). Iðunn er á fullu í "gera sjálf" skeiðinu svo allar athafnir á heimilinu taka nú helmingi lengri tíma en áður. Hún fær hrós í skólanum fyrir að vera duglegust að borða sjálf, og er með ákveðnar skoðanir á öllum hlutum. Yndislegust hún Iðunn okkar!
3 ummæli:
Yndislegust, fallegust og snidugust i sinum flokki.
Amman i Ameriku
Kannski getum við Iðunn horft saman á Dýrin í Hálsaskógi á DVD. Þá er jólunum reddað.
Takk fyrir nyjar myndir. Taglid er aedi!
Amman i Ameriky
Skrifa ummæli