Munu því hér með hefjast að nýju hefðbundnar fréttafærslur, þó mynd dagsins haldi áfram.
| Kaffi á Keflavík |
Ferðalagið hófst ekki vel. Við þurftum að vakna kl 05 en rétt eftir kl tvö um nóttina vaknaði mamman upp og mundi að Gobba amma hefði fengið bíllyklana að samnýtta bílnum en bílstólar stelpnanna sem við þurftum til að komast út á völl voru enn í honum. Úbs! Ekkert í því að gera um miðja nótt en mamman svaf ekki mikið eftir þetta. Kl 05,30 kom amma Fanney að skutla út á völl, þá var hin amman vakin, Helgi skutlaðist eftir lyklunum, setti stólana í réttan bíl og við komumst af stað um sex leytið.
Ferðin út á völl gekk vel, eins flugferðin þó Gerður hafi verið ansi lúin og var farin að kvarta undir lokin. Eins og vera ber sofnaði hún ca. 5 min fyrir lendingu.... ekki mikill svefn þar.
Við fengum okkur kaffi á vellinum enda áttum við þar klst bið eftir lest, tókum svo lest beint til Darlington. Við áttum reyndar bara tvö sæti pöntuð, en í stútfullri lest vildi samt enginn sitja við hliðina á þessum íslensku sígaunum með tvö börn...svo við vorum með 4 sæti allan tímann. Þetta afskiptaleysi annarra skýrist þó etv af því að yngsti meðlimur fjölskyldunnar var nú alveg búin að fá nóg og öskraði eins og hún ætti lífið að leysa í amk 40 mín.
| Kaffi í Manchester |
| Kaffi í Barnard Castle |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli