laugardagur, 19. maí 2012

Ævintýraferð til Yarm

Hér er enn kalt og grátt (á samt að skána í næstu viku, og vera fínasta veður þegar við höldum til Edinborgar).  Við ákváðum því að skreppa til Yarm til að hressa okkur við og breyta aðeins um umhverfi.  Yarm er yndislegur lítill bær hinum megin við Darlington.  Þar eru krúttlegar búðir sem er reyndar erfitt að skoða með Iðunni...og allir búnir að skreyta gluggana með breskum fánum til að undirbúa hátíðahöld vegna 60 ára setu Betu gömlu.

Við fengum yndislegt kaffi og hádegismat á ítölskum delicatessen sem við höfum komið á áður.  Una mamma mátaði frábæran kjól á frábæru verði, sem því miður hafði verið sniðinn fyrir brjóstalausar konur (spöruðum nokkrar krónur þar).  Iðunn fékk sápukúlur sem vöktu mikla lukku hjá litlu systur.


En svo hófst mikið ævintýri.  Á leiðinni heim flýgur fyrir okkur stór kráka...og endar þar með daga sína.  En við sáum hana ekki á veginum svo ákváðum að stoppa í Gainford til að athuga hvort hún væri nokkuð föst undir bílnum.  Viti menn, helvísk krákan hafði komist inn um loftgrindina að framanverðu og sat þar dauð og blikkföst með vængina hangandi yfir stuðarann - smart!! Iðunni þótti þetta mjög merkilegt og mikið spurningaflóð fylgdi um afdrif krákunnar og af hverju hún væri þarna og hvort hún fyndi til osfrv.


Við ákváðum að halda áfram heim og ná henni út þegar við værum komin, en áður en við leggjum af stað sjáum við mann koma gangandi framhjá með lamb undir arminum....náðum því miður ekki mynd af honum....svo sáum við ástæðuna þegar við keyrðum af stað - hann var greinilega að leita að flökkukind, sem við vorum búin að finna fyrir hann...hún hljóp nefnilega hálf brjáluð fyrir framan bílinn okkar og að lokum inn í garð á húsi þarna í grenndinni.


Annað merkilegt gerðist svo sem ekki....nema að Helgi þurfti spýtu og tvo poka til að ná fjandans fiðurfénu innan úr stuðaranum....Iðunni þótti það líka ansi spennandi!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir skemmtilega ferðasögu og myndir!

Amma G