Mamman er hálf andlaus en vildi bara skrá að leikskólavist Iðunnar gengur nú aðeins betur. Hún var bara sátt þegar ég sótti hana í dag, þó maturinn sé reyndar enn vondur. Alice vinkona hennar er búin að reynast henni vel - leikur við hana allan daginn og er alveg sama um tungumálaörðuleika. Iðunn er reyndar búin að reyna að segja henni að "My name is not Ídúnn, my name is Iðunn" en þessi skilaboð eru ekki að ná í gegn, hvorki hjá Alice né leikskólastarfsfólkinu.
Helgi stendur sig vel hér heima, setur saman rúm, vaskar upp og þvær þvott, og hugsar um stelpuna okkar. Gerður verður samt alltaf voða glöð þegar mamma og Iðunn koma heim - sopinn og skemmtikrafturinn!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli