Æ, ég er ekki alveg að standa mig í blogginu þessa dagana. Mér gengur illa að ná jafnvægi - alltof mikið að gera í vinnunni og ekki næg orka til að vinna, sinna börnunum og elda matinn og setjast svo niður að blogga. Ég reyni þó alltaf að setja myndir inná myndasíðuna fyrir ömmur með aðskilnaðarkvíða. Afsakanir, afsakanir.
Helst er í fréttum að Iðunn er aðeins ánægðari á leikskólanum. Maturinn er þó enn vondur. Það er alveg að bjarga henni að hafa Alice á deildinni - þær leika sér saman allan daginn, og Alice segir mömmu sinni að Iðunn sé besta vinkona hennar á Yellow Wellies. . Hún er voða dugleg að syngja á leikskólanum, er búin að læra "The wheels on the bus go round and round" og "If you´re happy and you know it clap your hands" og margt annað. Svo kann hún að segja Wriggly worm og ladybird, og wash your hands og annað lífs nausynlegt.
Litla skotta var lasin um helgina með háan hita en er nú aftur orðin hress. Hún hefur tekið upp á því að sofa vel í vagninum sínum bæði fyrir og eftir hádegi þegar hún er heima hjá pabba - það er aldeilis munur eftir 20 min blundana sem hún tók á Íslandi....heppinn Helgi...reyndar er hún líka farin að reyna að skríða svo þá ætti pabbinn að fá nóg að gera!
Annars er fátt að frétta - erum þó búin að panta okkur gistingu í Edinborg eftir rúma viku - ætlum að horfa á Diljá hlaupa og hver veit nema við hittum tengdaforeldrana líka. Svo kann að vera að við skoðum einhver dýr, en það á að koma Iðunni á óvart svo við biðjum alla um að þegja um það í bili.
Góða nótt!
Þreytta mamman, a.k.a. Una
PS Ég er svo þreytt að ég sé að ég endurtók mig ansi mikið síðan síðast - ja hérna.....men det er tanken som teller, eins og þar stendur!
1 ummæli:
Takk elskan mín!
Mamman þín
Skrifa ummæli