Nú er orðið langt síðan var bloggað síðast - engar haldbærar afsakanir til reiðu nema algjör þreyta Unu og enginn annar sem tekur verkið að sér.
Lífið er farið að komast í aðeins fastari skorður. Iðunn byrjaði á leikskólanum fyrir alvöru í vikunni, og Helgi er orðinn heimavinnandi húsfaðir af bestu sort. Vikuleg gin+spjallkvöld okkar Barböru eru byrjuð aftur, og Helgi er farinn að mæta í boltann á föstudögum.
Iðunn var í fyrsta sinn heilan dag á Yellow Wellies í gær. Það var erfiður dagur fyrir okkur mæðgurnar. Grátið þegar mamma fór, ágætt inná milli þegar ég hringdi til að athuga stöðuna um hádegi, en svo var hún alveg búin á því þegar ég kom að sækja: vildi aldrei fara þangað aftur, krakkarnir leiðinlegir og ljótir, maturinn óætur. Eftir miklar fortölur og loforð um nýja litabók ef hún héldi út fram á föstudag (hún á pláss miðvikudaga, fimmtudaga og föstudag), fékkst hún loks til að fara í dag, ef mamma kæmi snemma að sækja. Hún var þar frá 08 til 14.45 og þrátt fyrir vesen þegar ég fór var hún miklu glaðari í dag. Fékk að vera úti mest allan daginn, setja niður grænmeti og vökva það, og söng vist með í öllum lögunum í söngstundinni. Að auki sagði hún mér í óspurðum fréttum að hún hefði sagt við Alice "Alice, you want play with me?" og að Alice hefði sagt "yes". Duglega stelpan okkar! Svo er hún farin að geta spurt "what ´s this" og segir endalaust "Thank you very much", "yes" og "no" við okkur hér heima.
Við skruppum til Donnu á þriðjudaginn - hún hefur verið að heiman þangað til núna. Það voru miklir fagnaðarfundir. Donna er svo yndisleg og áttaði sig alveg á því að fagna Iðunni áður enhún fór að skoða Gerði. Svo fékk Iðunn að leika sér, og Donna fékk að knúsa Gerði, og allir nutu þess að vera saman á ný. Það er gott að eiga svona aukaömmu í útlandinu.
Helgi er flottur í pabbahlutverkinu og fæðingarorlofinu. Þegar við mæðgurnar komum heim eftir erfiða daginn í gær mætti okkur yndislegur matarilmur - heilsteiktur kjúklingur með hvítlauk, sítrónu og timian í ofninum og þvottur á snúrunni. Geri aðrir betur!
Og litla stelpan varð 8 mánaða á mánudaginn var...tíminn flýgur!
1 ummæli:
Takk, takk Una mín fyrir nýtt blogg og margar skemmtilegar myndir af stelpunum mínum.Það deyfir aðeins söknuðinn.
Amma G
Skrifa ummæli