Iðunn er sjálfstæð dama. Hún getur klætt sig í húfu. Hún getur klætt sig úr peysunni. Hún getur staðið upp sjálf. Hún getur klifrað yfir fólk frekar en að skríða í kringum það.....og...Hún "getur" borðað sjálf. Matartímar hér eru orðnir ansi subbulegir. Meiri tími fer í að þrífa gólfið en elda matinn, og mamman á erfitt með að sitja á sér á meðan hún lætur barnið æfa sig í sjálfstæðinu. Eflaust væri auðveldara að láta leikskólann um matarþjálfunina, en mér fyndist það halfgerð uppgjöf, svo í lok matartíma fær Iðunn aðeins að æfa sig. Látum nægja að segja að hún á enn ansi langt í land að geta séð sjálfri sér fyrir daglegum hitaeiningafjölda með þessari aðferð. En það er voða stuð að borða sjálf, og maturinn eflaust miklu betri þannig!
Annars er allt gott að frétta. Fórum öll til Manchester á mánudag á formfræðifund - 5 tíma ferðalag allt í allt sem reyndi á okkur öll en gekk samt furðu vel. Iðunn er að taka tennur (höldum við) og búin að vera Iðunn öfugsnúna í gær og í dag; og Helgi fór til Hull í dag og átti góðan fund með öllum hinum tölvusnillingunum.
Góða nótt!


