laugardagur, 13. desember 2008

Fjarvera


Hér verður líklega lítið bloggað næstu daga - ég fer til Spánar eldsnemma á sunnudagsmorgun, og kem ekki aftur fyrr en eftir hádegi á miðvikudag. Á meðan munu feðginin hafa það náðugt heima. Svo rétt næ ég að skipta um í töskunum áður en við förum heim til Íslands á fimmtudagsmorgninum. Ég verð að játa að það er einkennileg hugsun að fara í fyrsta sinn frá stelpunni sinni yfir nótt þó ég viti að hún verði í góðu yfirlæti hjá pabbanum sínum. Mér finnst þetta líka helst til löng fjarvera, svona í fyrsta sinn.
Bless í bili....

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég efast ekki um að litla glaða stúlkan og pabbi hennar eiga eftir að njóta þess að vera saman, en ég vorkenni mömmunni að vera í fyrsta skipti burtu frá stelpunni sinni.
Bara 2 dagar í Iðunni!
Amman óþolinmóða

Nafnlaus sagði...

Nú fer að styttast í að Iðunn komi heim til aðdáenda sinna á Íslandi.
Ég mæti á völlinn, barnabílstóllinn er tilbúinn og allt klárt.
Amman fk ofurspennta