mánudagur, 21. nóvember 2011

Miklar framfarir

Hér í Svíþjóð gerast undur og stórmerki á mánudagsmorgnum (Gerður er 11 vikna og 6 daga gömul):

Svona skildi ég við Gerði á meðan ég fór að klæða mig

....og svona kom ég að henni.

Fréttir úr þokulandi

Enn er allt rólegt í Sverige og þokunni ekkert farið að létta.  Gerður var böðuð í þvottahúsvaskinum á sunnudagskvöldið og þótti það heldur þröngt og hallærislegt og gargaði því allan tímann - því miður náðust ekki af því nokkrar myndir, enda mamman upptekin við að hafa stjórn á blautri stelpu.Annars hafa báðar stúlkur verið eins og hugur manns, yndislegar og duglegar eins og alltaf.
Fréttir berast frá Ísalandi að pabbinn hafi málað allt gestaherbergið og ganginn, en gangi heldur hægt með hitt.  Undirbúningsvinnan var víst tímafrek.  Við verðum þó fegin að geta tekið gestaherbergið í gagnið þegar við komum heim.  Einnig stendur víst til að flísaleggja því flísarnar okkar eiga loksins að vera komnar til landsins þegar við erum komin frá Svíþjóð.

Í gönguferð með vagnana - röltum fram í myrkur og fórum á tvo rólóa!
Á morgun, þriðjudag, fer Iðunn til Malmö að hitta vinkonu sína, hana Kristu af Grænuborg, og hlakkar mikið til!

sunnudagur, 20. nóvember 2011

Litla Lína og enn minni Lína


Litla Lína
Ennþá minni Lína
Það er eitthvað skrýtið við vatnið í Sverige.  Hárið vex og breytir um lit.  Allir að breytast í Línu Langsokk!

Crazy crazy!


Hér er svo sem ekki margt gert af viti, svo við höfum til dæmis dundað okkur við að taka hálf crazy myndir í speglinum inní afa og ömmu herbergi.  Þessi ofan er sú besta af okkur öllum þremur.  Iðunn vildi endilega fá mynd af bara sér í fanginu á mömmu.  Þegar ég skoðaði myndina kom hún mér kunnuglega fyrir sjónir....skrýtið hvernig maður getur tekið nánast sömu myndina tvisvar með margra ára millibili - meira að segja svipurinn á Iðunni er nákvæmlega eins.

laugardagur, 19. nóvember 2011

Systur í Svíaveldi


Nú eru systurnar komnar í heimsókn til afa Viðars, og Gerður í fyrsta sinn til útlanda.
Ferðin gekk ansi vel, Iðunn var dugleg að hjálpa mömmu og báðar stelpurnar voru mjög stilltar, fyrir utan þá litlu stund sem Gerður fékk í eyrun í lendingunni.  En það leið hjá fljótt og allir voru hressir þegar afi sótti okkur út á Kastrup.
Fyrsta daginn vorum við einar hér með afa, en í gærkvöldi komu svo Jóhann og amma Titti aftur heim eftir ferðir sínar (í sitt hvoru lagi) til Stockhólms - það var gaman að fá loks að hitta þau, og amma Titti var voða ánægð með þær báðar (eins og reyndar afi lika).
Hér í Svedala ganga dagarnir heldur rólega fyrir sig.  Við erum búnar að kanna matvöruverslunina, bókasafnið og rólóvöllinn, og það eru komnar inn einhverjar myndir á myndasíðu Gerðar. Við söknum pabba svoldið mikið, en vonum að hann nái að njóta þess að vera stelpulaus í nokkra daga - fær að forrita að vild, drekka bjór og gera aðra karlmannlega hluti.
Kær kveðja frá Sverige,
Iðunn, Gerður og ásynjumamman


miðvikudagur, 20. apríl 2011

Vinkonur



Í dag hittust loksins vinkonurnar Alice og Iðunn í fyrsta sinn síðan í fyrrasumar. Það var búið að tala mikið um að fara til Alice og heimsóknin sveik sko ekki - stelpurnar léku sér saman í yndislegu veðri á meðan mömmurnar unnu og pabbarnir sátu í garðinum og sötruðu bjór. Yndislega skemmtilegar saman, og Iðunn gleymdi alveg að vera feimin eins og sést á myndunum.




Eftir að hafa stríplast um allan eftirmiðdaginn, og prófað að kúka í grasið var haldið heim á leið....undir kvöldmat setti pabbi svo nýjan sand í sandkassann.
Fullkominn dagur fyrir litla stelpu!

þriðjudagur, 19. apríl 2011

Vordagar í yndislegu veðri í County Durham


Í garðinum hjá Donnu

Ferðin til Englands gekk vel, og allt samkvæmt áætlun, nema að foreldrarnir gleymdu að gera ráð fyrir áhuga erfingjans á að sjá leikföngin sín og þar af leiðandi var ekki sofnað fyrr en kl 00,30 og vaknað aftur kl 06.00 daginn eftir. Ansi framlágir foreldrar þann daginn.
Veðrið leikur við okkur, á meðan fólkið heima stríðir við snjó og slyddu á sumardekkjum hefur hér verið bongóblíða: 16C í gær, 19C í dag, spáð 22C á morgun, og góðu veðri fram á laugardag. Í gær tókum við því rólega, reyttum arfa, heimsóttum Donnu og Iðunn lék sér við stóru stelpurnar sem búa neðar í götunni. Í dag fórum við svo í afmæliskaffi hjá Ophélie, sem er doktorsnemi hjá eplamömmu og þaðan í strandferð til Saltburn. Bara yndislegt! Helgi ætlar varla að trúa því að veðrið geti verið svona gott hérna í Barnard Castle!


Afmæli Ophélie


Mokað á ströndinni í Saltburn


Íííískaldur sjórinn!

Öppdeit á síðustu dögunum í Svíþjóð




Síðustu dagarnir okkar í Svíþjóð voru yndislegir. Við tókum því rólega heima við og skruppum aðeins til Lundar og borðuðum ís. Eins skruppum við í Höganas og keyptum 3 nýja múminbolla í safnið. Hér eru nokkrar myndir.

fimmtudagur, 14. apríl 2011

ÓÞOLINMÓÐAR ÖMMUR ERU FARNAR AÐ KVARTA......SVO HÉR KEMUR NÝR PÓSTUR.

Vorveðrið hélst bæði sunnudag og mánudag. Á mánudaginn gerðum við heiðarlega tilraun til að fara á Picasso sýningu í Louisiana, en gleymdum að ekki er opið á mánudögum, svo enduðum á að fara í göngutúr um ströndina þar fyrir neðan í staðin og keyrðum svo til Köben og átum smurbrauð í Nyhavn og ís á Strikinu í hreint yndislegu veðri.



Á ströndinni

Pabbi og Iðunn heilsa hundi í Humlebæk

Á þriðjudag var úrhellisrigning, svo við lukum af verslunarferð i Lindex og keyptum fjólublá múmin náttföt á bæði stóru systur og litlu systur. Iðunn valdi svo eins skærbleika sokka á þær systurnar. Merkilegasti atburður dagsins var þó þegar Iðunn kastaði vatni (virtust vera margir lítrar!) inni á Polarn o Pyret og fyllti stígvélin sín sem er ansi slæmt þegar mikil rigning er úti og maður þarf á stígvélum að halda. Þessu var fljótbjargað. Mamma fann konu til að þurrka og skrapp svo á Hog M og verslaði nýjar nær- og sokkabuxur á stelpuna. Að lokum var farið á kaffihús með Jóhanni og borðaðir kanelsnúðar...ágætur rigningardagur. Mðvikudagurinn var líka kaldur og við héldum okkur i Svedala.



Mamma og Johan með dansatriði á kaffihúsinu



Áttum amk einn aðdáanda

Í dag (fimmtudag)fórum við svo að heimsækja Höllu stóru í Hvalsö. Þá var aftur komið vorveður svo við sátum úti allan eftirmiðdaginn og Iðunn hljóp um garðinn og sópaði stéttina. Alltaf gaman að skreppa til Höllu frænku.
Nóg í bili - toodiloo


sunnudagur, 10. apríl 2011

Vorið er komið til Svedala



Hérr er aldeilis vel tekið á móti okkur - vorið sjálf mætt í móttökunefnd. Hiti fór í 15 stig, sólin sken allan daginn. Við vorum úti frá morgni til kvölds. Litla daman fór úr skónum og hljóp um allt á tásunum, í fyrsta sinn á árinu. Ekki spillti fyrir að Emma og Erik komu að leika.
Yndislegur dagur!

PS Fleiri myndir á myndasíðunni