Helgin er búin að vera ólýsanlega yndisleg í Victoria Road. Endalaust sólskin, sumar, hiti, og skemmtilegur félagsskapur. Á föstudagskvöldið sótti ég ömmu Gee á flugvöllinn - vélin lenti uppúr 9 um kvöldið, og þá var enn 20 stiga hiti. Laugardagurinn var letidagur. Nutum þess bara að vera saman, löbbuðum niðri bæ (Iðunn labbaði alveg sjálf, tók "bara" 2 tíma) með viðkomu á tveimur róluvöllum. Sátum svo úti í garði og fengum hundinn Henry í heimsókn, og síðar meir aðra granna. kjúklingasalat í kvöldmat, og G og T í garðinum. Í dag tókum við því næstum jafn rólega en afrekuðum þó að skreppa til Darlington að versla, og skoða nýja tröppugosbrunninn - Iðunn og Helgi busluðu i honum lengi vel við mikla kátínu litlu dömunnar og annarra viðstaddra.
Lífið er yndislegt!
1 ummæli:
Gaman gaman hjá ykkur, litlu eplafjölskyldunni. Njótið vel. Iðunn er auðsjáanlega að ná fullu valdi á göngutækninni.
Skrifa ummæli