fimmtudagur, 19. júní 2008

Ekki skrið en næsti bær við


Iðunn er orðin ansi dugleg að hreyfa sig. Þegar hún er á gólfinu getur hún snúist í hringi, og velt sér á alla kanta til að ná í dótið sitt, og svo kann hún að ýta sér afturábak, þó hún skilji ekki alveg hvernig á því standi að dótið fjarlægist hana alltaf meir og meir þegar hún reynir þá aðferð. Þykir okkur líklegt að skriðið sé ekki langt undan...og eins að hún verði fyrri til gangs en móðir sín sem fór að ganga 18 mánaða. Parketlögn verður því að verða næst á framkvæmdadagskránni....það er vont að fá flísar og 100 ára gamla nagla í hnén!

Amma farin


Í dag fór amma Borghildur junior heim til Íslands og allir í Victoria Road sakna hennar. Það er búið að vera yndislegt að hafa hana og gott fyrir okkur Helga að fá smá hjálp við að sinna Iðunni. Við vonum bara að okkur hafi tekist að sannfæra hana um að vera lengur næst - vonandi ekki seinna en í gormánuði. Áður en amman fór náðist þó að festa hana á filmu í sumarkjólnum í bakgarðinum...á milli skúra.... Ekki fór þó betur en svo fyrir kjólnum að hann varð að láta í minni pokann fyrir nýjum innkaupum ömmunnar, og var skilinn eftir í Barnard Castle til að rýma fyrir nýjum bolum, rafmagnsgræjum, slagveðurskápu, og risastóru rúmteppi. Við vonum bara að veðrið verði nógu skaplegt í sumar til að ég geti nýtt mér kjólinn meðan hann er hér í geymslu.

Í dag hugsuðum við líka mikið til ömmu Sissu sem er farin frá okkur og við gátum ekki fylgt hinsta spölinn. Hún var yndisleg kona og verður sárt saknað.
Við fréttum líka í dag að Hildur og Þórhallur hafi eignast tvær flottar stelpur, nýjustu barnabarnabörn ömmu Sissu, á sjálfan þjóðhátíðardaginn og óskum við þeim innilega til hamingju með þær.

Kvennadagur og brúðkaupsafmæli

Í dag eiga prýðishjónin Æsa og Jóhannes Þór 9 ára brúðkaupsafmæli og heitir það víst leirbrúðkaup. Óskum við þeim innilega til hamingju með daginn og vonum að þau geri sér einhvern dagamun þó við höfum stolið ömmunni og hún því ekki heima til að passa.
Jóhannes er löngu genginn í systrahópinn, og því við hæfi að brúðkaupsdagur þeirra hjóna er á Kvennadaginn. Hér í Barnard Castle verður mikill kvennafans í dag: Iðunn, amma, Una og Donna.... Helgi er enn að horfa á vídjóið um male breastfeeding, en getur samt enn ekki talist í hópi kvenna.

þriðjudagur, 17. júní 2008

17.júni


Hér héldum við upp á þjóðhátíðardaginn með skemmtiferð til Newcastle og fórum svo út að borða á Wagamama. Gleymdist því miður að taka með íslenska fánann og skrúðgangan var ansi stutt - 3 fótgangandi og ein á hjólum, en samt þjóðhátíðarstemmning ríkjandi. Hefði samt mátt halda að væri kominn fyrsti maí eftir innkaupum Helga og ömmu Gobbu: Helgi verslaði 2 rauða boli og rauðrósótta skyrtu (orðinn mikill metrómaður!), og amman verslaði rauðan brjóstahaldara og rauða skó - bolsagenin eru ansi ríkjandi í ættinni og virðast smita út frá sér til tengdafólks líka. Amma Borghildur senior lifir því enn í okkar fólki. Allir útkeyrðir eftir daginn og húsfreyja of lúin til að blogga meira í bili...

Einar á afmæli - jibbí jei og jibbí jei!



Til hamingju með afmælið Einar afmælisbarn og föðurbróðir! Við vonum að þú farir báðum að komast til Indlands í ævintýraútlegðina, því það er svo leiðinlegt að vera grasekkill.
Flott viðtal við Einar í Morgunblaðinu í tilefni dagsins - hann stelur næstum senunni frá ísbirninum!

Stéttin komin í gagnið!



Í gær var ofsalega skemmtilegur dagur hjá öllum hér á bæ. Amma og Iðunn eyddu deginum saman og fóru m.a. í þriggja tíma göngutúr og skoðuðu krákur, kanínur og fleira. Helgi fékk að forrita og fótboltast í ró og næði, og ég fór á fund sem var svo bara ágætur eftir allt saman - skipti þar miklu máli að tekinn var smá tími í göngutúr á ströndinni eftir nokkurra klukkustunda fundarsetu sem bjargaði öllu. Þegar ég kom heim um sex leytið var svo loks komið G&T veður svo við fórum í fjölskyldugöngu í búðina og versluðum það sem þurfti til slíks, og svo var nýja stéttin loksins vígð í kvöldsólinni. Yndislegt!

sunnudagur, 15. júní 2008

Amma stuð


Iðunni finnst amma alveg rosalega skemmtileg og fyndin. Í dag tók amman kvöldstund í að æsa barnið upp, kítla, gera spinnegal og bara almennt undirbúa undir svefninn. Hmmmmm vinsælt hjá Iðunni og ömmu, ekki kannski eins sniðugt til að undirbúa góðan nætursvefn fyrir litla stúlku og foreldra hennar. Hún er nú samt sofnuð, og verður vonandi í góðu stuði á morgun, en þá ætlar amman að leysa Helga af og leyfa honum að eiga náðugan dag á meðan ég er í vinnunni. Hann hlakkar mikið til að fá að eyða deginum fyrir framan tölvuna án þess að þurfa að sinna litlu pæjunni eða eiginkonunni...já eða stórframkvæmdum í garðinum... og amman hlakkar til að fá að hafa barnabarnið fyrir sig í heilan dag. Húsfrúin ætlar hins vegar á fund frá 09.30-17.00 og hlakkar lítið til...

laugardagur, 14. júní 2008

Rigningardagur


Í dag komst amma Gobba hvorki í sólkjólinn né gindrykkju.... Leit reyndar ekkert svo illa út til að byrja með, sólin skein meira að segja í smá stund á meðan Iðunn svaf morgunblund í vagninum sínum. Við vorum þó varla fyrr lögð á stað í gönguferð en himnarnir opnuðust og skýfall drekkti okkur algjörlega á svo sem eins og einni mínútu. Verst var að við áttum engan annan kost en að leita skjóls á pöbbnum.....hræðileg harðindi hérna í Barnard Castle. Það var eins gott að Iðunn var í pollagallanum góða sem mamman verslaði á útsölu um daginn! (hinn gallinn sem hún fékk frá Huldu Sóleyju er enn of stór). Annars var bara unaðsgóður dagur, við fórum í labbitúr um nágrennið og skoðuðum hænsnaræktina hinum megin við ánna. Amma keypti sér fegrunarkrem, og pabbinn fékk að horfa á boltann meðan amman og mamman horfðu á fasteignaþætti á netinu.
A good time was had by all.

föstudagur, 13. júní 2008

G og T skortur


Kommentin sem skilin hafa verið eftir hér að undanförnu virðast gefa til kynna ótæpilegar áhyggjur af áfengisdrykkju ættmóðurinnar a.k.a. Gobbu ömmu. Ber því að tilkynna að hér hefur enn hvorki verið keypt né innbyrt Gin....hvað þá tónik. Við minnumst hins vegar ekkert á rýrnun vínbyrgða heimilisins..... En sem sagt mjög gaman hjá ömmu og Iðunni, aðeins smá pínu lítið oggo lítill of langur verslunarleiðangur fyrir Unu... en sem sagt bara gaman....

7,9kg!

,
Samkvæmt nákvæmustu mælingum bresku heilbrigðisstéttarinnar er Iðunn nú orðin tæp 8kg, stór og sterk stelpa, 6 mánaða og tveggja daga gömul. Amman sem kom í gær segist halda að hún fari bráðum á skrið, því hún er farin að reyna að reisa sig upp á hnén og snýr sér í hringi á maganum til að geta fylgst með öllu skemmtilegu sem fram fer á heimilinu. Það verður nú aldeilis fjör hjá okkur þá.
Annars allt gott að frétta, Amma Gobba kom í hús kl. 23.30, vakti barnið sem skildi ekkert í þessu stuði um miðja nótt en dreif sig samt í að sýna ömmu allar listir sem hún hefur lært síðan hún sá hana síðast. Allir svoldið lúnir í dag.