föstudagur, 13. júní 2008

G og T skortur


Kommentin sem skilin hafa verið eftir hér að undanförnu virðast gefa til kynna ótæpilegar áhyggjur af áfengisdrykkju ættmóðurinnar a.k.a. Gobbu ömmu. Ber því að tilkynna að hér hefur enn hvorki verið keypt né innbyrt Gin....hvað þá tónik. Við minnumst hins vegar ekkert á rýrnun vínbyrgða heimilisins..... En sem sagt mjög gaman hjá ömmu og Iðunni, aðeins smá pínu lítið oggo lítill of langur verslunarleiðangur fyrir Unu... en sem sagt bara gaman....

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ekkert gin og tónik hér á bæ en erum hins vegar að stefna á mojito- og margaritusvall með grillinu í blíðskaparveðri.

Nafnlaus sagði...

alltaf sama drykkjan á þessum dætrum hennar Borghildar, Una í Calvados, Æsa í Mojito og guð veit einn hvað Diljá er að drekka (vonandi þó ekki Rakíi)

Una sagði...

Já þú ert svo mikill bindindismaður Örvar minn......