fimmtudagur, 19. júní 2008

Amma farin


Í dag fór amma Borghildur junior heim til Íslands og allir í Victoria Road sakna hennar. Það er búið að vera yndislegt að hafa hana og gott fyrir okkur Helga að fá smá hjálp við að sinna Iðunni. Við vonum bara að okkur hafi tekist að sannfæra hana um að vera lengur næst - vonandi ekki seinna en í gormánuði. Áður en amman fór náðist þó að festa hana á filmu í sumarkjólnum í bakgarðinum...á milli skúra.... Ekki fór þó betur en svo fyrir kjólnum að hann varð að láta í minni pokann fyrir nýjum innkaupum ömmunnar, og var skilinn eftir í Barnard Castle til að rýma fyrir nýjum bolum, rafmagnsgræjum, slagveðurskápu, og risastóru rúmteppi. Við vonum bara að veðrið verði nógu skaplegt í sumar til að ég geti nýtt mér kjólinn meðan hann er hér í geymslu.

Í dag hugsuðum við líka mikið til ömmu Sissu sem er farin frá okkur og við gátum ekki fylgt hinsta spölinn. Hún var yndisleg kona og verður sárt saknað.
Við fréttum líka í dag að Hildur og Þórhallur hafi eignast tvær flottar stelpur, nýjustu barnabarnabörn ömmu Sissu, á sjálfan þjóðhátíðardaginn og óskum við þeim innilega til hamingju með þær.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þurfti að rýma til í töskunni fyrir rafmagnsgræjum.... ó svo margir brandarar, svo lítill tími...

Nafnlaus sagði...

Það er eins gott að gæta orða sinna kæri tengdasonur...
Það var ósköp erfitt að kveðja litlu fjölskylduna í Barnard Castle, sérstaklega Iðunni, sem er svo dugleg að knúsa ömmu sína og kyssa eins og sjá má á mörgum myndum hér á blogginu.Sumarblíðan beið mín í Reykjavík, en þá er sumarkjóllinn og G & t víðs fjarri.