
Hér héldum við upp á þjóðhátíðardaginn með skemmtiferð til Newcastle og fórum svo út að borða á Wagamama. Gleymdist því miður að taka með íslenska fánann og skrúðgangan var ansi stutt - 3 fótgangandi og ein á hjólum, en samt þjóðhátíðarstemmning ríkjandi. Hefði samt mátt halda að væri kominn fyrsti maí eftir innkaupum Helga og ömmu Gobbu: Helgi verslaði 2 rauða boli og rauðrósótta skyrtu (orðinn mikill metrómaður!), og amman verslaði rauðan brjóstahaldara og rauða skó - bolsagenin eru ansi ríkjandi í ættinni og virðast smita út frá sér til tengdafólks líka. Amma Borghildur senior lifir því enn í okkar fólki. Allir útkeyrðir eftir daginn og húsfreyja of lúin til að blogga meira í bili...
2 ummæli:
Wagamama ...NAMMI!
Ég öfundast út í ykkur.
Iðunn og Borghildur virðast talsvert dúðaðar á 17. júní í landi Englanna meðað við berjumst við ísbirni í sól og blíðu. Gaman er að sjá myndir og fréttir af ykkur hér á síðaunni. Gætið nú vinkonu minnar vel!
Bestu kveðjur - Jóna
Skrifa ummæli