Í dag eiga prýðishjónin Æsa og Jóhannes Þór 9 ára brúðkaupsafmæli og heitir það víst leirbrúðkaup. Óskum við þeim innilega til hamingju með daginn og vonum að þau geri sér einhvern dagamun þó við höfum stolið ömmunni og hún því ekki heima til að passa.Jóhannes er löngu genginn í systrahópinn, og því við hæfi að brúðkaupsdagur þeirra hjóna er á Kvennadaginn. Hér í Barnard Castle verður mikill kvennafans í dag: Iðunn, amma, Una og Donna.... Helgi er enn að horfa á vídjóið um male breastfeeding, en getur samt enn ekki talist í hópi kvenna.
2 ummæli:
Til hamingju, vonand leira thau mikid i tilefni dagins.
Þökk fyrir, en hér var lítið leirað. Hvers konar pæling er það líka að vera með leirbrúðkaup? Er verið að hvetja til einhvers konar rómó leðjuslags?
Endilega láttu okkur nú vita hvort Helgi fær tútturnar til að virka, við rýmum snarlega til á systrabekknum fyrir mjólkandi mönnum.
Skrifa ummæli