föstudagur, 13. júní 2008

7,9kg!

,
Samkvæmt nákvæmustu mælingum bresku heilbrigðisstéttarinnar er Iðunn nú orðin tæp 8kg, stór og sterk stelpa, 6 mánaða og tveggja daga gömul. Amman sem kom í gær segist halda að hún fari bráðum á skrið, því hún er farin að reyna að reisa sig upp á hnén og snýr sér í hringi á maganum til að geta fylgst með öllu skemmtilegu sem fram fer á heimilinu. Það verður nú aldeilis fjör hjá okkur þá.
Annars allt gott að frétta, Amma Gobba kom í hús kl. 23.30, vakti barnið sem skildi ekkert í þessu stuði um miðja nótt en dreif sig samt í að sýna ömmu allar listir sem hún hefur lært síðan hún sá hana síðast. Allir svoldið lúnir í dag.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Var amma komin í GogT stuð?

Una sagði...

Reyndar Calvados stuð, en gott stuð samt!

Nafnlaus sagði...

Getum við treyst á að fá reglulegar fréttir af ömmuuppáhellingum? þurfum við að panta hjá Þórarni þegar hún kemur heim?