Verkfræðingurinn er lúmskur. Hann kemur sér fyrir, bíður átekta, og um leið og færi gefst ræðst hann á garðinn þar sem hann er lægstur og innrás tæknivæðingarinnar er hafin! Um daginn bilaði ískápurinn í Victoria Road. Verkfræðingurinn gekk í málið og hálfum mánuði síðar, eftir bestun og gæðakönnun er kominn nýr ísskápur í húsið.....hann kom á mánudag. Nokkrum dögum eftir að ísskápurinn var keyptur var komin ný kaffivél. Í dag föstudag kom svo önnur sending: brauðrist og brauðgerðarvel.....og á morgun skilst mér að von sé á manni með flatskjá! Ég þori varla að spá í hvað muni birtast í næstu viku!
Annars er það helst að frétta að hér er hundleiðinlegt veður...endalaus rigning....en það kemur á móti að á meðan rignir hér er sól á Íslandi svo einhver nýtur þó góðs af!
Allir hraustir, allir glaðir, og Helgi strax farinn að hlakka til að fikta í flatskjánum....

