Sjöunda tönnin er loksins komin! Iðunn á eftir tæpar tvær vikur í 17 mánuði og loksins loksins er þriðja framtönnin í neðri góm að líta dagsins ljós. Reyndar hefur enn ekki náðst mynd af dýrgripnum, en það stendur vonandi til bóta. Þangað til verða lesendur bara að njóta dagsgamallar myndar af Iðunni og Beamish að spjalla saman.
3 ummæli:
Eru 7 tennur ekki alveg mátulega margar? Mér finnst Iðunn líka fjarska tillitssöm við mömmu sína að flýta sér hægt við að fara að ganga. Mamman er búin að þola mikið háð og spott frá systkinum sínum fyrir að hafa verið sein til gangs og er nú ekki lengur ein í flokki seingöngukvenna.
Amman ekki á leiðinni (því miður)
Já þetta er náttúrulega bara tillitssemi við mig...hún sem er svo galvösk og rösk í öllu öðru er enn ekki farin að taka meira en 10 skref....og það tiltölulega sjaldan. Ég held því fram að þessi göngurólegheit séu bara einhver fylgifiskur snillingsgenanna sem við mæðgurnar erum gæddar.
Una
Iðunn ætlar að fara út að labba með ömmu sinni í næstu viku. Það verður gaman.
FK amman
Skrifa ummæli