
Að ofan má sjá mómentið þegar Iðunn pæja uppgötvaði loks að hún kynni alveg að ganga. Hún stóð við sófaborðið, gekk til mömmu, aftur tilbaka, aftur til mömmu (mamman búin að grípa myndavélina og farin að smella!) og hélt svo bara áfram út úr stofunni og fram á gang og þaðan inn í borðstofu! Litla daman er nákvæmlega 17 mánaða í dag svo hún slær mömmu sinni við um einn mánuð - það virðist seint ætla að taka af mér þetta met! Ég hef þó unnið það upp því ég hef varla stoppað síðan!
Kveðja frá montnu eplafjölskyldunni.
5 ummæli:
Húrra, húrra fyrir stelpunni minni, sem skaut mömmu sinni ref fyrir rass. Mátti þó ekki tæpara standa. Gaman að sjá að hún hefur dressað sig upp fyrir tilefnið. Hlakka til að sjá hana hlaupa á móti mér eftir tæpar 3 vikur.
Grobbna amman í turninum
Að klifra er miklu skemmtilegra en að labba. Það er svo margt geymt ofan á skápum og í hillum, oftast nær eitthvað sem við megum ekki taka.
kv Dagur stóri frændi
Iðunn mín,rétt hjá þér að drífa í því að ganga upprétt, nýja fína rauða peysan frá ömmu FK nýtur sín svo miklu betur!!
kv. Eygló
Iðunn er flottust!
Vaknar jákvæð og hress alla daga. Sérstaklega skemmtileg milli kl. 5:30 og 8 á morgnana. Hlakka til að hitta ykkur aftur í sumar.
Amma fk
Rosa sæt, til hamingju með fyrsta göngutúrinn!
Einar og Eszter frá sofanum
Skrifa ummæli