laugardagur, 25. apríl 2009

Iðunn á örlagadegi


25.apríl 2009 - Kosningadagur búsáhaldabyltingarmanna

Merkisdagur í dag - sér vonandi fyrir endann á allt of langri einokunarstjórn Sjálfstæðisflokks og komið að upprisu vinstri manna - verst að hvorki afi Bragi né amma Borghildur hin eldri fengu að njóta hans.
Eplafjölskyldan er þó atkvæðalaus því ónytjungurinn sem er ræðismaður Íslands í Newcastle tekur hvorki við pósti né símtölum, og sýður í eplapabba og eplamömmu að þurfa að hafa látið atkvæði sín fara forgorðum - vonandi sækir draugur Jóns Sigurðssonar ræðismanninn heim í nótt!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Spennandi kosningavaka. Allt getur gerst. Kannski hefðu atkvæði eplafjölskyldunnar híft VG aðeins upp. Ögmundur er úti í kuldanum.
Við viljum Iðunni á þing.
FK amman