sunnudagur, 3. maí 2009

Á eftir sjö kemur átta....


Þá eru komnar átta tennur þar sem áður voru sjö....um að gera að halda munninum samhverfum. Annars er lítið að frétta héðan. Mamman er búin að vera með einhverja lumbru sem skýrir bloggleysi undanfarinna daga, en er nú að ná sér. Við erum búin að vera eins mikið úti og hægt er síðustu daga, förum á róló, skoðum bæinn okkar, njótum garðsins nýja og æfum stelpuna í göngulistinni. Við erum líka búin að taka fram grillið og notuðum það í fyrsta sinn í gærkvöldi, þó Iðunn hafi reyndar verið sofnuð þegar maturinn var tilbúinn. Eini gallinn við alla þessa útiveru er að enn er ekki búið að taka til fyrir heimsókn ömmu Fanneyjar í næstu viku...en það eru enn nokkrir dagar til stefnu!

Að lokum viljum við minnast á að Iðunn var að eignast nýjan frænda Orrason á sjálfan 1.maí. Afi Bragi hefði nú aldeilis verið hrifinn af því! Til hamingju Þórdís, Orri, Eyja, Kári og Flóki með nýja fjölskyldumeðliminn!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Fyndin mynd af litla átttennta skallapopparanum og mamman fín í afmæliskápunni sinni. Ég veit að öfund er ljótur löstur, en ég verð samt að játa að ég blóðöfunda hina ömmuna, sen er á leið til Iðunnar eftir nokkra daga.
Amman öfundsjúka