Enn einn merkisdagurinn í dag: Iðunn var heilan dag á stóru (stærri) barna deildinni í Stígvélabæ. Allt gekk vel, stelpan sæl - hafði sungið og litað og spilað á hljóðfæri, og meira að segja eignast nýja vinkonu - ekki amalegt á einum degi.
Verra er að vorið er horfið og komið ekta enskt rigningarveður...vonum bara að rigningin verði horfin í næstu viku þegar von er á ömmu FK í heimsókn.
1 ummæli:
Fullt af stórfréttum á eplablogginu eftir nokkurra daga fjarveru ömmunnar í Ameríku. Hæst ber þó að Iðunn sé farin að ganga sjálf og þar af leiðandi ekki lengur ungabarn og komin í hóp "stóru" krakkanna.Til hamingju með hvoru tveggja litla skott.
Amma Ameríkufari
Skrifa ummæli