Hér hefur ríkt bloggleti, enda nóg að gera í Victoria Road þessa dagana, við erum nefnilega með ömmu Fanneyju í heimsókn. Iðunn var rosa ánægð að fá ömmu sína og var ekkert feimin - búin að sýna henni leikskólann sinn og allt dótið í herberginu sínu. Við Helgi erum á því að við þyrftum helst að hafa ömmurnar hérna til skiptis til að skemmta heimasætunni - í dag fengum við til dæmis að kúra fram eftir og lesa blaðið í rúminu yfir kaffibolla algjörlega óáreitt meðan amman hélt uppi standandi skemmtidagskrá. Ansi ljúft! Amma kom færandi hendi með nýja lopapeysu og fallega bók með geisladiski sem heitir "Ef væri ég söngvari" handa Iðunni, og marga kaffipakka handa foreldrunum. Í tilefni þessa fjárfestum við loks í nýrri kaffivél eftir að hafa þurft að nota pressukönnu síðan gamla vélin gaf sig fyrir rúmu ári. Kaffidrykkjan í rúminu var því enn betri fyrir vikið!
Túdilú!
2 ummæli:
Já, það var mikið! Öfundsjúka amman var líka orðin óþolinmóða amman (vonandi ekki óþolandi amman), þegar ekkert blogg birtist dag eftir dag. Flott rauð peysa! Var ég ekki annars rauða amman? Ég held ég sé í vondum málum.Þarf að fara að drífa mig á svæðið.
Óþolinmóða, öfundsjúka, bleika? amman
gott að fá fréttir...en ég get í sjálfu sér skilið að góður kaffibolli komi í veg fyrir blogg :)
kv,
Hildur (bláa frænkan!)
Skrifa ummæli