mánudagur, 29. september 2008

Húskuldi


Húskuldar eru ansi slæmir í Bretaveldi, og þá sérstaklega um nætur þegar enginn hefur efni á að kynda. Ég hef haft smá áhyggjur af Iðunni sem aldrei vill sofa undir sænginni sinni, en hingað til hefur sumar"hitinn" bjargað okkur. Í nótt vaknaði ég hins vegar til að gefa Iðunni og uppgötvaði að litlar hendur og fætur voru sem mini klakar....ekki gott fyrir stelpuna, og ekkert sérstaklega þægilegt fyrir mömmuna heldur. Myndin hér að ofan er af Iðunni þegar hún fór að sofa í kvöld. Fulldúðuð í vörum frá 66N - gallinn er reyndar alltof alltof stór en þetta var eina lausnin sem mér datt í hug í flýti til að halda hita á tásunum. Takk elsku Dagur frændi fyrir afnotin af þessum fína galla, þó hann hafi etv ekki verið ætlaður sem náttklæðnaður!

Covergirl!


Iðunn hefur tekið fyrsta skrefið í átt að frægð og frama með forsíðumynd á frægu tímariti. Nei, nei, ekkert jafn lágkúrulegt og Vogue, Cosmo eða Marie Claire fyrir dömuna okkar. Hún mun prýða forsíðu vísindaritsins Human Nature í December, og að ofan má sjá hve vel hún tekur sig út. Byrjuð í vísindunum strax á fyrsta ári - geri aðrir betur!

sunnudagur, 28. september 2008

Spes fyrir ömmur: Iðunn felur sig og spjallar

Ömmurnar virðast hafa horft svo oft á hin vídjóin að þær hljóta að þurfa eitthvað nýtt að skoða, hér kemur það:

Pennine Way og Tan Hill


Hér var allt á hvolfi þegar við komum heim - ekki hafði gefist tími til að ganga frá þvotti eða skipta á rúmum áður en farið var til Barcelóna, og það varð að koma öllu í lag áður en allir byrja í nýrri vinnu, leikskóla og gamalli vinnu í næstu viku. Hins vegar kom á móti að aldrei þessu vant er yndislegt haustveður, sól og blíða, og bara engin leið að hanga innivið. Við ákváðum því að slá þessu upp í kæruleysi og fara bara í göngu upp á heiði. Við gengum lítinn hluta af mikilli gönguleið sem heitir Pennine Way og nær eftir Bretlandi endilöngu. Best er við hlutann sem við völdum að hann endar á pöbb sem heitir Tan Hill og er víst sá pöbbur sem hæst stendur í Englandi. Þangað er gott að koma enda ófáir gestirnir sem ég hef dregið þangað í gegnum tíðina. Gangan var skemmtileg, útsýnið stórkostlegt í fallegu veðri og Iðunn naut að vera úti í náttúrunni. Hægt er að sjá nokkrar myndir í septemberalbúminu. Eini gallinn er að burðarpokinn sem við eigum er ekki mjög góður í erfiðari og lengri göngur (húsmóðir kom heim ansi bakveik), en nú erum við búin að panta annan poka betri og berst hann vonandi hingað í næstu viku svo við getum haldið áfram að skoða landið.

laugardagur, 27. september 2008

Barcelona


Jæja þá erum við komin aftur eftir vel heppnaða ferð til Barcelona - 9 1/2 dagur fjarri skarkala hversdagslífsins og ansi ljúft allt saman.
Ferðin byrjaði reyndar ekki vel: Samkvæmt gömlum sið Unu voru sætisfélagar ekki hinir bestu - fullir tattúeraðir slömm gaurar (með fjsk.) allt í kringum okkur á leið á Costa Brava ...að stæra sig af að hafa drukkið 8 bjóra í 2 1/2 tíma flugi sem segir ansi margt um gæðin á þeim ferðafélögum. Ekki tók betra við þegar til Barcelona var komið. Við hringdum í leigusalann og mættum á svæðið á tilsettum tíma, en leigusalinn mætti hins vegar ekki fyrr en rúmum tveimur tímum seinna, eftir að hafa hringt endalaust og lofað að vera á leiðinni, og við staðið eins og sígaunar á götuhorni með allt okkar hafurtask allan þennan tíma. Reyndar sýndi sig manngæskan þar eins og annars staðar, að eftir tæpra tveggja tíma bið, þegar farið var að dimma, kom kona út úr húsinu á móti og bauð okkur Iðunni inn til sín í sæti þar til leigusalinn kæmi - hafði hún verið að fylgjast með okkur út um glugga sinn á 4. hæð í dágóðan tíma. Hún talaði ekkert nema spænsku og við enga, en hún bauð mér ólívur, ost og brauð, og dóttir hennar ca. 8 ára bar endalaust af leikföngum í Iðunni og skemmti henni af mikilli þolinmæði.
Eftir að í hús var loks komið var allt í lukkunnar velstandi hjá litlu fjölskyldunni okkar það sem eftir var dvalarinnar. Iðunn undi sér vel í hitanum og var hrókur alls fagnaðar, enda er maður ansi vinsæll á suðrænum slóðum með risastór djúpblá augu. Hvert sem við komum kepptust gamlar konur, túristar og sérstaklega veitingafólk við að dást að Iðunni, fá að halda á henni og knúsa og kjassa. Iðunn brosti náttúrulega framan í alla og sýndi þeim litlu tönnina sína og var bara yndislegust og fallegust eins og alltaf.
En hvað var gert í ferðinni: Við eyddum reyndar megninu af tímanum í að skoða fólk, ganga um götur og sitja á kaffihúsum að virða fyrir okkur mannlífið. Lögðum mikið upp úr að heimsækja öll helstu hverfin og fá góða tilfinningu fyrir þeim. Það rigndi aðeins á okkur af og til og einn dag var algjört úrhelli sem var samt ansi fyndið á súrrealistískann hátt - Helgi og Iðunn eignuðust bæði nýja regnjakka eftir þann dag! Meðan við vorum þarna stóð yfir Merce - aðalhátíð barcelónabúa, - með flugeldasýningum, vínkynningum, leiksýningum osfrv og nutum við góðs af. Við fórum með barnið í funicular yfir höfnina og hugsuðum til ömmu Gee sem er svo lofthrædd. Við skoðuðum Míró safnið og fundum þar sýningu eftir Ólaf Elíasson. Við hugsuðum til afa Braga einbúa þegar við sáum svefnherbergi Gaudi í Gaudísafninu. Við kenndum stelpunni okkar að borða tortilla, smokkfisk, jamon, ólívur og annað góðgæti. Við uppgötvuðum að með litla stelpu með í ferð verður maður að borða meginmáltíðina í hádeginu og láta sér nægja snarl á kvöldin. Við keyptum Campers skó þrátt fyrir dvínandi gengi krónunnar. Við fórum á vínkynningu Katalóníumanna og fundum besta vín í heimi sem samt kostaði bara 3,7 evrur. Sem sagt allt of langt að telja saman, en ofsalega vel heppnuð ferð.
Við lentum í Durham Tees Valley Airport í yndislegu sólskini og 16 stiga hita, sem er ansi gott í lok september. Góður endir á yndislegri brúðkaupsferð - 14 mánuðum og einu barni of seint!

miðvikudagur, 24. september 2008

Amma Fanney á afmæli í dag!!


Í dag á amma Fanney afmæli, orðin hmmmmmmmm ára. Amma Fanney er súperflínk, búin að hekla hatta og prjóna peysur og vesti til að hlýja okkur öllum í enska vetrarkuldanum. Svo bakar hún líka bestu kransakökurnar! Til hamingju með daginn amma Fanney - vonandi komumst við heim sem allra fyrst til að gefa þér Iðunnarknús!

miðvikudagur, 17. september 2008

Góðir gestir


Í kvöld kom hingað Daníel vinur okkar allra, og með í för var enn mikilvægari gestur: Chloe stjúpdóttir hans, 10 ára. Iðunni finnst Chloe æðisleg og ég held að aðdáunin sé gagnkvæm. A.m.k. var mjög gott fyrir foreldrana að fá að slappa af og tala við Daníel, vitandi að Iðunn undi sér vel að leik við Chloe. Yndislegt! Annað er helst að frétta að ráðningarsamningur Helga kom í dag og við gengum í að opna fyrir hann bankareikning, og allt gekk furðu vel.
Barcelona á morgun!!

Iðunn hoppar

Hitt vídjóið vakti svo mikla lukku að við reynum aftur - í þetta sinn Iðunn í hoppurólu...aðeins verri lýsing, en jafn mikið fjör!

þriðjudagur, 16. september 2008

Half a brain......


Augljóst er að vídjóblogg er málið, enda hafa aldrei borist jafn mörg komment við neinni færslu og þeirri síðustu, þó Hildur hafi aðeins hjálpað til með að nýta vikuskammtinn sinn á einum degi.
Annars er það helst að frétta að Iðunnin er búin að vera ansi óvær á nóttunni...skríða í svefni og svo framvegis (sem væri alveg rosalega fyndið ef maður væri ekki svona þreyttur!), og halda þannig vöku fyrir móður sinni - pabbinn sefur allt af sér eins að venju. Þetta er orðið ansi þreytandi, og erfitt þegar mæta þarf í vinnu daginn eftir. Í fyrrinótt lagði ég mig kl 22.20, náði loks að sofna kl. 02 og var vakin í 3 skipti til viðbótar áður en skvísan vaknaði endanlega um sjöleytið. Úff! Afleiðingin er algjört bloggandleysi......svo lesendur verða bara að hafa mig afsakaða í dag. Tomorrow is another day.....og svo Barcelona daginn þar á eftir!!

mánudagur, 15. september 2008