
Iðunn hefur tekið fyrsta skrefið í átt að frægð og frama með forsíðumynd á frægu tímariti. Nei, nei, ekkert jafn lágkúrulegt og Vogue, Cosmo eða Marie Claire fyrir dömuna okkar. Hún mun prýða forsíðu vísindaritsins Human Nature í December, og að ofan má sjá hve vel hún tekur sig út. Byrjuð í vísindunum strax á fyrsta ári - geri aðrir betur!
8 ummæli:
Þetta þarfnast frekari útskýringa!
Forsíðan vísar í grein eftir (m.a.) vini okkar frá Vín sem fengu leyfi til að nota Iðunni til að sýna hvernig sumir bílar virðast kjút eins og Iðunn og aðrir karlmannlegri eins og gaurinn fyrir neðana hana. Sjá http://www.springerlink.com/content/h721w570782777p1/?p=2b4f8d3bb1ea48f3a7810a7beb007854&pi=0
Ég man að þið skráðuð þetta eftir Vínarferðina. "Svo fékk Sonja doktorsnemi í Vínarborg að nota mynd af Iðunni í doktorsverkefnið sitt, svo hún er strax orðin hluti af vísindaheiminum, ekki nema 7 mánaða gömul!" Þetta er líklega doktorsverefnið. Þetta er mjög athyglisvert rannsóknarefni og fyrirsætan er meiriháttar. Hún er algjört sjarmatröll.
haha...þetta er stórkostleg mynd af henni :)Frægð og frami á næsta leiti.
Iðunn er auðvitað bara sætust
Thessi strakur er nu lika alveg saetur.....
Vel munað amma Fanney, þetta er einmitt hið sama doktorsverkefni. En ég get ekki sagt að mér þyki drengurinn sætur....
Jú ég er sammála Diljá. Strákurinn er BMW-legur. Iðunn er svona Austin míni-leg. BMW eru flottir bílar en Mini eru sætir.
Skrifa ummæli