mánudagur, 29. september 2008

Húskuldi


Húskuldar eru ansi slæmir í Bretaveldi, og þá sérstaklega um nætur þegar enginn hefur efni á að kynda. Ég hef haft smá áhyggjur af Iðunni sem aldrei vill sofa undir sænginni sinni, en hingað til hefur sumar"hitinn" bjargað okkur. Í nótt vaknaði ég hins vegar til að gefa Iðunni og uppgötvaði að litlar hendur og fætur voru sem mini klakar....ekki gott fyrir stelpuna, og ekkert sérstaklega þægilegt fyrir mömmuna heldur. Myndin hér að ofan er af Iðunni þegar hún fór að sofa í kvöld. Fulldúðuð í vörum frá 66N - gallinn er reyndar alltof alltof stór en þetta var eina lausnin sem mér datt í hug í flýti til að halda hita á tásunum. Takk elsku Dagur frændi fyrir afnotin af þessum fína galla, þó hann hafi etv ekki verið ætlaður sem náttklæðnaður!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég verð að herða mig við prjónaskapinn. Reyndar átti þetta að verða vesti, en ég verð líklega að bæta við vettlingum og lopasokkum.

Nafnlaus sagði...

Elsku litla stelpan! Þú verður að kaupa handa henni svona svefnpoka eins og eru svo vinsælir fyrir börn í þessu hráslagalega, vankynta landi, sem þið búið í.

Una sagði...

Já hér er ekkert sérstaklega hlýtt - suddarigning í dag. Iðunn svaf samt vel í múnderingunni svo aðferðin virkaði. Allur prjónaskapur auðvitað vel þeginn að venju :-)