
Jæja þá erum við komin aftur eftir vel heppnaða ferð til Barcelona - 9 1/2 dagur fjarri skarkala hversdagslífsins og ansi ljúft allt saman.
Ferðin byrjaði reyndar ekki vel: Samkvæmt gömlum sið Unu voru sætisfélagar ekki hinir bestu - fullir tattúeraðir slömm gaurar (með fjsk.) allt í kringum okkur á leið á Costa Brava ...að stæra sig af að hafa drukkið 8 bjóra í 2 1/2 tíma flugi sem segir ansi margt um gæðin á þeim ferðafélögum. Ekki tók betra við þegar til Barcelona var komið. Við hringdum í leigusalann og mættum á svæðið á tilsettum tíma, en leigusalinn mætti hins vegar ekki fyrr en rúmum tveimur tímum seinna, eftir að hafa hringt endalaust og lofað að vera á leiðinni, og við staðið eins og sígaunar á götuhorni með allt okkar hafurtask allan þennan tíma. Reyndar sýndi sig manngæskan þar eins og annars staðar, að eftir tæpra tveggja tíma bið, þegar farið var að dimma, kom kona út úr húsinu á móti og bauð okkur Iðunni inn til sín í sæti þar til leigusalinn kæmi - hafði hún verið að fylgjast með okkur út um glugga sinn á 4. hæð í dágóðan tíma. Hún talaði ekkert nema spænsku og við enga, en hún bauð mér ólívur, ost og brauð, og dóttir hennar ca. 8 ára bar endalaust af leikföngum í Iðunni og skemmti henni af mikilli þolinmæði.
Eftir að í hús var loks komið var allt í lukkunnar velstandi hjá litlu fjölskyldunni okkar það sem eftir var dvalarinnar. Iðunn undi sér vel í hitanum og var hrókur alls fagnaðar, enda er maður ansi vinsæll á suðrænum slóðum með risastór djúpblá augu. Hvert sem við komum kepptust gamlar konur, túristar og sérstaklega veitingafólk við að dást að Iðunni, fá að halda á henni og knúsa og kjassa. Iðunn brosti náttúrulega framan í alla og sýndi þeim litlu tönnina sína og var bara yndislegust og fallegust eins og alltaf.
En hvað var gert í ferðinni: Við eyddum reyndar megninu af tímanum í að skoða fólk, ganga um götur og sitja á kaffihúsum að virða fyrir okkur mannlífið. Lögðum mikið upp úr að heimsækja öll helstu hverfin og fá góða tilfinningu fyrir þeim. Það rigndi aðeins á okkur af og til og einn dag var algjört úrhelli sem var samt ansi fyndið á súrrealistískann hátt - Helgi og Iðunn eignuðust bæði nýja regnjakka eftir þann dag! Meðan við vorum þarna stóð yfir Merce - aðalhátíð barcelónabúa, - með flugeldasýningum, vínkynningum, leiksýningum osfrv og nutum við góðs af. Við fórum með barnið í funicular yfir höfnina og hugsuðum til ömmu Gee sem er svo lofthrædd. Við skoðuðum Míró safnið og fundum þar sýningu eftir Ólaf Elíasson. Við hugsuðum til afa Braga einbúa þegar við sáum svefnherbergi Gaudi í Gaudísafninu. Við kenndum stelpunni okkar að borða tortilla, smokkfisk, jamon, ólívur og annað góðgæti. Við uppgötvuðum að með litla stelpu með í ferð verður maður að borða meginmáltíðina í hádeginu og láta sér nægja snarl á kvöldin. Við keyptum Campers skó þrátt fyrir dvínandi gengi krónunnar. Við fórum á vínkynningu Katalóníumanna og fundum besta vín í heimi sem samt kostaði bara 3,7 evrur. Sem sagt allt of langt að telja saman, en ofsalega vel heppnuð ferð.
Við lentum í Durham Tees Valley Airport í yndislegu sólskini og 16 stiga hita, sem er ansi gott í lok september. Góður endir á yndislegri brúðkaupsferð - 14 mánuðum og einu barni of seint!
4 ummæli:
Gaman gaman, gott ad thetta var vel heppnad - var einhver barnagradug thjonustustulkan sem baudst til ad kaupa Idunni, thid gaetud hafad graett mikinn pening!
Hagsýna meinarðu? Nja við hefðum eflaust getað selt hana, en þær eru á svo lélegum launum konugreyin að þær buðu ekki nógu vel....svo er hún reyndar ekki til sölu.
Verð að muna að biðja þig ekki um að passa fyrr en þú ert búin að borga upp heimsferðina.....
Greinilega frábært ferðalag. Flottar myndir af litla heimshornaflakkaranum. Alltaf jafn glöð og ánægð með lífið.
Hagsyna thad var rett, hvar vaeri eg an thin? I raesinu, an efa!
Skrifa ummæli