miðvikudagur, 17. september 2008

Góðir gestir


Í kvöld kom hingað Daníel vinur okkar allra, og með í för var enn mikilvægari gestur: Chloe stjúpdóttir hans, 10 ára. Iðunni finnst Chloe æðisleg og ég held að aðdáunin sé gagnkvæm. A.m.k. var mjög gott fyrir foreldrana að fá að slappa af og tala við Daníel, vitandi að Iðunn undi sér vel að leik við Chloe. Yndislegt! Annað er helst að frétta að ráðningarsamningur Helga kom í dag og við gengum í að opna fyrir hann bankareikning, og allt gekk furðu vel.
Barcelona á morgun!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Góða ferð til Barcelona litla Iðunn og þið öll og góða skemmtun í brúðkaupsferðinni.

Nafnlaus sagði...

góða ferð og megið þið borða yfir ykkur af hráskinku, kræklingi og hvítlaukssteiktum smokkfiski og skola svo öllu niður með góðu Rioja og jafnvel Cava í eftirrétt.....namminamminamm