þriðjudagur, 16. september 2008

Half a brain......


Augljóst er að vídjóblogg er málið, enda hafa aldrei borist jafn mörg komment við neinni færslu og þeirri síðustu, þó Hildur hafi aðeins hjálpað til með að nýta vikuskammtinn sinn á einum degi.
Annars er það helst að frétta að Iðunnin er búin að vera ansi óvær á nóttunni...skríða í svefni og svo framvegis (sem væri alveg rosalega fyndið ef maður væri ekki svona þreyttur!), og halda þannig vöku fyrir móður sinni - pabbinn sefur allt af sér eins að venju. Þetta er orðið ansi þreytandi, og erfitt þegar mæta þarf í vinnu daginn eftir. Í fyrrinótt lagði ég mig kl 22.20, náði loks að sofna kl. 02 og var vakin í 3 skipti til viðbótar áður en skvísan vaknaði endanlega um sjöleytið. Úff! Afleiðingin er algjört bloggandleysi......svo lesendur verða bara að hafa mig afsakaða í dag. Tomorrow is another day.....og svo Barcelona daginn þar á eftir!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk Una mín. Eins og ég sagði við Diljá: allt blogg er betra en ekkert blogg.Þetta daglega blogg með tilheyrandi myndum er alveg ómetanlegt fyrir einmana ömmu. Vídjóbloggið með dillandi hlátrinum virkar eins og instant antidepressiva,ef illa liggur á manni.

Nafnlaus sagði...

Kjúklingurinn gerir þessa mynd epíska!