sunnudagur, 31. maí 2009

Helgarhamingja!!




Helgin er búin að vera ólýsanlega yndisleg í Victoria Road. Endalaust sólskin, sumar, hiti, og skemmtilegur félagsskapur. Á föstudagskvöldið sótti ég ömmu Gee á flugvöllinn - vélin lenti uppúr 9 um kvöldið, og þá var enn 20 stiga hiti. Laugardagurinn var letidagur. Nutum þess bara að vera saman, löbbuðum niðri bæ (Iðunn labbaði alveg sjálf, tók "bara" 2 tíma) með viðkomu á tveimur róluvöllum. Sátum svo úti í garði og fengum hundinn Henry í heimsókn, og síðar meir aðra granna. kjúklingasalat í kvöldmat, og G og T í garðinum. Í dag tókum við því næstum jafn rólega en afrekuðum þó að skreppa til Darlington að versla, og skoða nýja tröppugosbrunninn - Iðunn og Helgi busluðu i honum lengi vel við mikla kátínu litlu dömunnar og annarra viðstaddra.
Lífið er yndislegt!

fimmtudagur, 28. maí 2009

Sommar, sommar , sommar!




Sumarið er komið - a.m.k. í bili. Samkvæmt veðurspá verður hlýrra hér en í París á morgun, og veðurspá helgarinnar (þegar turnamman verður í heimsókn) er "Warm and Sunny" fyrir bæði laugardag og sunnudag. Í tilefni þessa tókum við Iðunn okkur til og plöntuðum sumarblómum í potta í kvöld, vökvuðum og snyrtum, og gerðum garðinn ömmuvænann. Nú er bara eftir að bæta í gin og tonic byrgðirnar!

Svo viljum við biðja fólk að hugsa fallegar hugsanir til Maríu Dísar vinkonu Iðunnar, og foreldra hennar, smá bakslag í dag, og önnur aðgerð líkleg, en vonandi verða þau komin heim til Kristins stóra bróður eftir rúma viku.

miðvikudagur, 27. maí 2009

Bók!

Bók, Mamma, Bóóóók!!!!!
Litla stelpan er hugfangin af bókum, og þó sérstaklega þeirri stóru, með myndinni af skónum og jarðaberjunum og stráknum sem fer í bað. Það má leggja mikið á sig fyrir bókina - því hún er stór og þung og varla hægt að sjá yfir hana þegar maður staulast til mömmu með skemmtilegheitin,
Bók, mamma, bók!!!!



mánudagur, 25. maí 2009

Gleðiblogg!


Er nokkuð til betra en þriggja daga helgi sem ber alla upp á góðviðrisdaga, þegar allur mánuðurinn á undan var kaldur og hráslagalegur?  Yndislegt!  Hér var 20C í dag, logn, sól og svona sumarlykt í loftinu.  Við áttum góðan dag í garðinum, fylgdumst með skemmtilegri skrúðgöngu og Iðunnin gekk alla leiðina heim úr bænum.  Einnig rákumst við á Lellu Eden sem eitt sinn bjó hér í næsta húsi.  Hún er komin hátt á tíræðisaldur og nýflutt aftur í bæinn eftir nokkur ár hjá dóttur sinni í Leeds.  Við kynntum hana fyrir Iðunni, og það var svo gaman að sjá tvær kjarnakonur fagna hver annarri. Við keyptum okkur tvo stóla og borð í garðinn till að bæta ömmuaðstöðuna, og borðuðum nýbakað brauð í hádegismat við nýja borðið.  


Undir kvöldið kíktum við til Barböru, og rétt þegar sólin hvarf, Iðunn var sofnuð og lungamjúk hlý rigning féll í Victoria Road, grillaði Helgi Pétur gourmet borgara til að taka helgina með trompi.  
Vinnudagur á morgun, en allir endurnærðir eftir helgina.
Að lokum ber að geta þess að María Dís vinkona Iðunnar, sem fór í stóra hjartaaðgerð fyrir hálfum mánuðui, er nú orðin svo hress að hún verður líklega komin til Íslands fyrir helgi - frábærar fréttir!


sunnudagur, 24. maí 2009

Yndislegur sumardagur

Hér er loksins komið sumarveður - sól og blíða og yndislegt.  Ekki spillir fyrir að þetta er þriggja daga helgi, svo við getum notið hennar enn betur en ella.  Þessa helgi er alltaf margt um að vera í Barnard Castle, enda haldið svo kallað Barnard Castle Meet.  Í fyrra fórum við á árlegu gufuvélasýninguna, og í dag fórum við á útitónleika niðri við ána, og á morgun ætlum við að fylgjast með skrúðgöngunni um bæinn.  Inn á milli skemmtiatriða tókum við til úti í garði og heimsóttum Donnu.  Mikið stuð Í Barnard Castle!  Litla daman sofnaði um leið og höfuðið seig á koddann eftir endalaust stuð og mikla útiveru.

Við hófum daginn með morgunkaffi á tröppunum....

Heimsóttum Donnu og lékum okkur í garðinum...

Æfðum skrefin í allan heila dag....

Fórum á útitónleika á Demesnes túninu í Barnard Castle og hittum krakka....

....og eftir langan og skemmtilegan dag, spagettí og kjötbollur í kvöldmatinn!

laugardagur, 23. maí 2009

Louis Louis Louis!



Louis vinur hennar Iðunnar átti þriggja ára afmæli í dag og okkur boðið í heimsókn - þykir kannski ekki fréttnæmt nema vegna þess að þetta er fyrsta barnaafmælið sem okkur er boðið í síðan við komum til Englands. Veðrið var ekki alveg eins gott og spáð hafði verið, en nógu gott samt, og það var grillað og svo var sjóræningjakaka, og mikið fjör. Iðunn var reyndar svoldið smeyk við stóru krakkana, enda margir hávaðaseggir samankomnir í litlu rými, en hún náði sér fljótt og naut sín við leik úti jafnt sem inni, þó hún hafi reyndar verið svoldið óheppin að krakkarnir voru allir annað hvort þó nokkuð yngri eða eldri. Kom þó ekki að sök því Louis átti svo margt skemmtilegt dót til að leika sér að, t.d. fullt að hávaða-batteríis leikföngum sem pabbi hleypir ekki inn fyrir hússins dyr hér í Victoria Road.
Heimadagur á morgun enda allir lúnir.

föstudagur, 22. maí 2009

The Great Escape!




Uppáhaldsorð og iðja Iðunnar þessa dagana er LABBA! Það er varla hægt að fara útí búð án þess að daman heimti að fá að komast úr kerrunni og ganga sjálf. Yfirleitt sækist þá heimferðin frekar seint, enda leggirnir stuttir og gangan löng. Eina skiptið sem Iðunn fer hart er þegar hún er með Brio vagninn á undan sér. Í gær vorum við pabbi hennar að stússast með rusl í garðinum og daman nýtti tækifærið og labbaði með vagninn sinn út í bakgarðinn, þaðan lá leiðin upp bakgötuna, inn næstu bakgötu og þaðan út á Victoria Road með mömmu í humátt á eftir. Litla pæjan fékkst ekki til að snúa við fyrr en hún var komin hálfa leið niðrí bæ, eftir að hafa hitt hundinn Henry, fullt af nágrönnum, heilsað öllum sem leið áttu um götuna með hressu Halllóóóó og drottningarveifi, og skemmt sér stórkostlega vel. Það er stuð að vera 17 1/2 mánaða!

miðvikudagur, 20. maí 2009

Tannburstun


Munnurinn á Iðunni hýsir hvorki Karíus né Baktus, því daman veit fátt skemmtilegra en að bursta tennurnar. Ef hún mætti mundi hún bursta þær 10 sinnum á dag. Myndirnar að ofan voru teknar við burstunina í kvöld.
Hér gerist fátt fréttnæmt, en þó það að hér er næsta helgi þriggja daga helgi, og í tilefni þessa er verið að setja upp tívolí í miðbæ Barnard Castle, og eins verður skrúðganga og hin árlega gufuvélahátíð, svo það ætti að verða óvenjulega mannmargt í bænum. Það er spáð góðu veðri eftir margra vikna rigningar, sem er eins gott því okkur er boðið í barnaafmælisgrill í Durham í hádeginu á laugardag. Sem sagt skemmtileg helgi fram undan, verst að það skuli bara vera miðvikudagur!

mánudagur, 18. maí 2009

Nina


Hér gleymdist að segja sögu úr júrópartíinu. Iðunn er voða áhugasöm um fólk og þá sérstaklega önnur börn. Ég hef reyndar tekið eftir að hún hefur samt lítinn áhuga á pínulitlum ungabörnum. Þetta skýrðist aðeins í partíinu um helgina. Iðunn sýndi Nínu litlu lítinn áhuga fram eftir kvöldi, en þegar hún loks kom auga á hana skoðaði hún hana lengi vel þangað til hún var alveg viss hvers konar skepna væri þar komin. Loks dettur upp úr minni: Kisa! Mjááá mjááá!! ...og svo teygði hún sig til að strjúka henni eins og köttunum hérna heima - Sniðug stelpa hún Iðunn okkar.

Nýja leikfangið hans Helga


Hér gefur að líta sjónvarpið sem Helgi keypti sér - ætti að vera nógu stórt fyrir hann jafnt sem ömmurnar. Iðunn er alveg hissa á þessu ferlíki - starir stóreyg á barnatímann. Nú er næsta verkefnið fyrir eplamömmuna að kenna Helga að slökkva á sjónvarpinu og koma aftur á sjónvarpsbanni fyrir kl 18 sem reynst hafði ágætlega á dögum litlaskjás.
Aðrar fréttir eru þær að Iðunn er að fá tvo jaxla sem hafa aðeins verið að pirra hana, og að brauðvélin nýja bakar hreint ágætis brauð, og það er ekki nærri því eins erfitt að vakna þegar ilmandi brauðlykt leggur um allt húsið kl. 06.45.