sunnudagur, 24. maí 2009

Yndislegur sumardagur

Hér er loksins komið sumarveður - sól og blíða og yndislegt.  Ekki spillir fyrir að þetta er þriggja daga helgi, svo við getum notið hennar enn betur en ella.  Þessa helgi er alltaf margt um að vera í Barnard Castle, enda haldið svo kallað Barnard Castle Meet.  Í fyrra fórum við á árlegu gufuvélasýninguna, og í dag fórum við á útitónleika niðri við ána, og á morgun ætlum við að fylgjast með skrúðgöngunni um bæinn.  Inn á milli skemmtiatriða tókum við til úti í garði og heimsóttum Donnu.  Mikið stuð Í Barnard Castle!  Litla daman sofnaði um leið og höfuðið seig á koddann eftir endalaust stuð og mikla útiveru.

Við hófum daginn með morgunkaffi á tröppunum....

Heimsóttum Donnu og lékum okkur í garðinum...

Æfðum skrefin í allan heila dag....

Fórum á útitónleika á Demesnes túninu í Barnard Castle og hittum krakka....

....og eftir langan og skemmtilegan dag, spagettí og kjötbollur í kvöldmatinn!

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

omg segðu mér að Iðunn eigi þennan æðislega bleika útilegustól!
ks

Una sagði...

Skvo....Iðunni langar rosa mikið í þennan bleika útilegustól....og ætlaði að stela honum frá stelpunum á myndinni, og mamman með bleika horrorinn er næstum orðin tilbúin að kaupa bleikan stól handa stelpunni sinni....I am going soft in my old age....

Nafnlaus sagði...

uss... bleikt og ekki bleikt... stelpurnar ráða þegar á hólminn er komið... og Iðunn vill bleika stólinn.. sem er flottur..
Anna Lilja ekki bleika

Una sagði...

OK er farin að svipast um eftir bleikum stól....

amma fk sagði...

Frábært. Sól og blíða í Barnard Castle. Aldeilis fjör hjá Iðunn-inni minni. Gott að sofna eftir svona skemmtilegan dag. Og svo er bleiki stóllinn í augsýn.