Hér gefur að líta sjónvarpið sem Helgi keypti sér - ætti að vera nógu stórt fyrir hann jafnt sem ömmurnar. Iðunn er alveg hissa á þessu ferlíki - starir stóreyg á barnatímann. Nú er næsta verkefnið fyrir eplamömmuna að kenna Helga að slökkva á sjónvarpinu og koma aftur á sjónvarpsbanni fyrir kl 18 sem reynst hafði ágætlega á dögum litlaskjás.
Aðrar fréttir eru þær að Iðunn er að fá tvo jaxla sem hafa aðeins verið að pirra hana, og að brauðvélin nýja bakar hreint ágætis brauð, og það er ekki nærri því eins erfitt að vakna þegar ilmandi brauðlykt leggur um allt húsið kl. 06.45.
2 ummæli:
Hlakka til að fá nýbakað brauð, kaffi úr nýju kaffivélinni og horfa á sjónvarpið án kíkis.Hlakka samt mest til að sjá litlu ömmustelpuna og allar nýju tennurnar hennar.11 dagar til stefnu.
Amman á leiðinni
Þetta líkar mér. Loksins komið almennilegt sjónvarp á eplaheimilið. Ég þarf að koma aftur til að horfa á sjónvarp og prófa nýbakað brauð.
Skrifa ummæli