mánudagur, 18. maí 2009

Nina


Hér gleymdist að segja sögu úr júrópartíinu. Iðunn er voða áhugasöm um fólk og þá sérstaklega önnur börn. Ég hef reyndar tekið eftir að hún hefur samt lítinn áhuga á pínulitlum ungabörnum. Þetta skýrðist aðeins í partíinu um helgina. Iðunn sýndi Nínu litlu lítinn áhuga fram eftir kvöldi, en þegar hún loks kom auga á hana skoðaði hún hana lengi vel þangað til hún var alveg viss hvers konar skepna væri þar komin. Loks dettur upp úr minni: Kisa! Mjááá mjááá!! ...og svo teygði hún sig til að strjúka henni eins og köttunum hérna heima - Sniðug stelpa hún Iðunn okkar.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Fyndið!!!!!!!!

Amma G

Nafnlaus sagði...

Hahahaha krúttið :D

Hún er nátturulega bara algjör dúlla :D

Knús frá Bostonliðinu sem les Iðunnarfréttir á hverjum degi !
Fríða, Gunnar og María Dís

amma fk sagði...

Iðunn kann lagið á svona krílum eða eins og skáldið sagði:
Komir þú í hús, þar sem kaffi er ekki á borðum,
og kunnir ekki við að biðja um það með orðum.
Stattu þá hjá frúnni, um stund án þess að tala,
stjúktu á henni bakið og þá fer hún að mala.