fimmtudagur, 28. maí 2009

Sommar, sommar , sommar!




Sumarið er komið - a.m.k. í bili. Samkvæmt veðurspá verður hlýrra hér en í París á morgun, og veðurspá helgarinnar (þegar turnamman verður í heimsókn) er "Warm and Sunny" fyrir bæði laugardag og sunnudag. Í tilefni þessa tókum við Iðunn okkur til og plöntuðum sumarblómum í potta í kvöld, vökvuðum og snyrtum, og gerðum garðinn ömmuvænann. Nú er bara eftir að bæta í gin og tonic byrgðirnar!

Svo viljum við biðja fólk að hugsa fallegar hugsanir til Maríu Dísar vinkonu Iðunnar, og foreldra hennar, smá bakslag í dag, og önnur aðgerð líkleg, en vonandi verða þau komin heim til Kristins stóra bróður eftir rúma viku.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

við erum að spá hvort þið getið sett eitthvað á þakið á húsinu ykkar til að við finnum það á google earth! við erum búin að útiloka öll húsin með trampólin í garðinum (sem virðast vera vinsæl í Englandi) en vitum samt ekki hvaða hús er ykkar!
ks

Una, Helgi og Iðunn sagði...

Ég er búin að setja link frá heimilisfanginu hér til hliðar.

Nafnlaus sagði...

Gaman, gaman. Get ekki beðið.
Amman óþreyjufulla.