Er nokkuð til betra en þriggja daga helgi sem ber alla upp á góðviðrisdaga, þegar allur mánuðurinn á undan var kaldur og hráslagalegur? Yndislegt! Hér var 20C í dag, logn, sól og svona sumarlykt í loftinu. Við áttum góðan dag í garðinum, fylgdumst með skemmtilegri skrúðgöngu og Iðunnin gekk alla leiðina heim úr bænum. Einnig rákumst við á Lellu Eden sem eitt sinn bjó hér í næsta húsi. Hún er komin hátt á tíræðisaldur og nýflutt aftur í bæinn eftir nokkur ár hjá dóttur sinni í Leeds. Við kynntum hana fyrir Iðunni, og það var svo gaman að sjá tvær kjarnakonur fagna hver annarri. Við keyptum okkur tvo stóla og borð í garðinn till að bæta ömmuaðstöðuna, og borðuðum nýbakað brauð í hádegismat við nýja borðið.
Undir kvöldið kíktum við til Barböru, og rétt þegar sólin hvarf, Iðunn var sofnuð og lungamjúk hlý rigning féll í Victoria Road, grillaði Helgi Pétur gourmet borgara til að taka helgina með trompi.
Vinnudagur á morgun, en allir endurnærðir eftir helgina.
Að lokum ber að geta þess að María Dís vinkona Iðunnar, sem fór í stóra hjartaaðgerð fyrir hálfum mánuðui, er nú orðin svo hress að hún verður líklega komin til Íslands fyrir helgi - frábærar fréttir!
3 ummæli:
Það vantar bara BLEIKAN stelpustól hjá 0mmuaðstöðunni og þá er þetta fullkomið og stærri regnhlíf hjá grillinu svo Helgi geti grillað með báðum.
kv. Eygló
Nú er amman komin úr sveitinni og farin að telja dagana þangað til hún fær að knúsa stelpuna sína og prófa nýju ömmuaðstöðuna. Passa bara að halda í góða veðrið þangað til.
Gaman að skoða allar nýju myndirnar af stelpunni gangandi.
Amman á leiðinni
Til hamingju með sumarið í Bretlandi. Það var kominn tími til eftir margra ára sumarleysi. Frábært að heyra að aðgerðin gekk vel hjá Maríu Dís.
Skrifa ummæli