sunnudagur, 7. september 2008

Sunnudagur


Afslöppunin hélt áfram í dag með heldur tíðindalitlum sunnudegi. Við fórum þó í gönguferð til að virða fyrir okkur vatnavexti í ánni Tees, sem voru ansi miklir, a.m.k. meiri en Helgi hefur áður séð. Veðrið var enn og aftur hálf leiðinlegt og engin leið til að vita hvernig manni ber að klæða sig - sól og hitastækja á milli langra ískaldra regnskúra. Gengum meðfram ánni upp í sveit og sáum þar m.a. hegra, og fáránlegar kindur með langa dindla (hálfgerða hala!). Bókuðum svo loks íbúð í Barceloneta fyrir brúðkaupsferðina langþráðu - ekki nema 11 dagar þangað til!
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hefur Iðunni tekist að klóra sig til blóðs á nefinu þrátt fyrir endalausar naglasnyrtingar, og er hún því ansi fyndin í framan þessa dagana. Tanntakan er líka að valda henni smá óþægindum, a.m.k. þykir okkur hún óvenjulega óvær. Ofan á allt þetta leggjast sífelldar byltur, enda stefnir hugurinn oft í meiri langferðir og hærri hæðir en líkaminn er fær um, hvað þá jafnvægisskynið. En hún er náttúrulega alltaf flottust, sætust og yndislegust!

laugardagur, 6. september 2008

Matargat


Anna Lilja var að falast eftir matarbloggi. Þeir sem ekki hafa áhuga á matarvenjum ungbarna geta því hætt að lesa núna.
Nú, 9 mánaða, með 2mm af einni framtönn er Iðunn farin að borða ansi margt. Uppistaðan er nú kannski að mestu leyti grautar, mauk og brjóstamjólk, en hún vill ólm smakka allt sem foreldrarnir borða, og svo fremi sem það er ekki of salt eða sætt fær hún það. Þannig hefur hún smakkað og borðað ansi vel af reyktum laxi, sauerkraut, brauði, osti, melónum, ananas, grænmeti, pasta með ýmsum sósum, (sykurskerta versjón af) kartöflumús a la Lína, hrískökum og svo framvegis. Enn er lítið af mjólkurvörum á dagskrá, nema ostur og svo fékk hún skyr heima og jafnvel smakk af Brynjuís á Akureyri. Hún farin að fá maukaðar versjónir af kvöldmatnum og borðaði hún í kvöld hvorki meira né minna (sammaukað) en heilt kjúklingalæri, 1/2 ofnbakaða sæta kartöflu, og smá sneið af rauðlauk. Henni er nokk sama hvort kekkir séu í matnum svo fremi sem hún ráði við að koma matnum ofan í sig. Sem sagt, lítið matargat sem enn sem komið er er ánægð með flest sem henni býðst. Við erum voða fegin!

Nýju fötin feðginanna

Hér að ofan má sjá Helga Pétur (a.k.a. Blue Steel) í nýju peysunni sem keypt var á hann í bæjarferð. Iðunn sýnir nýjar sokkabuxur frá Marks & Spencer. Mig grunar að þrátt fyrir að Iðunn eigi svo sem nóg af fötum í sinni stærð verði ég að fara að kaupa fleiri þunn og lipur ullar- og flísföt til að bæta fyrir vetrar rakann hér í UK - hér er þegar orðið svo hráslagalegt inni sem úti að Iðunn fer í Janusgalla eða flíspeysu utan yfir náttfötin þegar hún fer fram úr fyrst á morgnana. Brrr.... ég er farin að sjá enn betur kostina við að búa á Íslandi - húsin heit og um fram allt þurr!

föstudagur, 5. september 2008

Gul stígvél í mígandi rigningu


Hér rekur hver merkisdagurinn annan. Helgi er orðinn Marie Curie Fellow, og nú er komið að Iðunni að takast á við miklar breytingar. Eftir símhringingar og pælingar fundum við pláss fyrir hana á leikskóla sem heitir því ágæta nafni Yellow Wellies. Það var því viðeigandi að þegar við fórum að skoða leikskólann í dag var dæmigert stígvélaveður og gott betur......hér er varað við stórflóðum og Arkarsmíð í undirbúningi. Okkur leist öllum vel á skólann. Hann er í stóru gömlu húsi í Durham sem áður hýsti geðsjúklinga (tengsl okkar við læknastéttina haldast sterk að venju). Það er smá útivistarsvæði og krakkarnir hvattir til að vera úti í öllum veðrum (yfirleitt er útivera ekki á stundaskránni í breskum leikskólum), matur allur vistvænn og ekki ein einasta frönsk kartafla á matseðlinum. Einn starfsmaður á hverja þrjá krakka, og aðstaðan í alla staði góð. Lítur því allt út fyrir að Iðunn fari í þriggja daga aðlögun þegar við komum frá Barcelóna.
Helgi fór og fékk sér nýjan síma með ensku númeri...síminn hans nú er því (+44-7810080398). Öllu brösulegar gekk að fá sér bankareikning, þar sem engin önnur plögg eru tekin gild um búsetu en reikningar, sem hér eru allir í mínu nafni, svo nú er bara að ganga í að fá Helga á þá svo hægt sé að opna bankabók.
Annars allt bara fínt að frétta, allir lúnir eftir langa viku og tími til kominn að skríða í bælið.
Toodiloo...

fimmtudagur, 4. september 2008

Hvað er að gerast? Gaflinn fer hækkandi!


Eygló eldri frænka (til aðgreiningar frá Eygló yngri frænku, sem er 8 ára..bara svo að Eygló eldri móðgist nú ekki) getur varpað öndinni léttar því búið er að lækka rúmbotninn og koma upp fangelsi fyrir Iðunni. Henni þykir þetta allt óskaplega spennandi eins og er, en mig grunar að ljóminn fari af nýunginni um leið og rennur upp fyrir henni hve rýmið er lítið innan rimlanna.
Annars er lítið að frétta, nema að Donna bauð okkur í mat í kvöld til að skoða myndir úr Íslandsferðinni og hitta okkur öll á ný. Hún er enn jafn ánægð með ferðina þrátt fyrir að hafa hitt alla fjölskyldumeðlimi okkar...sem líklegast gefur til kynna hve hún er stabíl manneskja og jákvæð. Á morgun er svo fótbolti hjá Helga í fyrsta sinn í 6 vikur...mig grunar að hann verði ansi lúinn annað kvöld :-)

miðvikudagur, 3. september 2008

Rólegheit


Eftir mikið span síðustu vikur fékk litla skvísan loks dag í rólegheitum heima með pabba sínum. Við vonum að hún nái ansi mörgum slíkum áður en við skellum okkur til Barcelona í síðbúna brúðkaupsferð um miðjan mánuðinn - einungis 14 mánuðum og einu barni of seint! Vel þess virði samt því nú höfum við fengið skemmtilegasta ferðafélagann í Iðunni. Á meðan feðginin dóluðu sér heima fór ég í vinnuna og vann af kappi...fór svo og skoðaði nýju skrifstofuna mína (deildin flytur eftir 2 vikur), og uppgötvaði að þar eru ekki nema 6 heilar og 3 stuttar hillur.....u.þ.b. 75% minna hillupláss en ég er með sem stendur. Einnig að húsgögnin passa ekki inn á skrifstofuna - ég sé fyrir mér að það verður mikið púsl að flytja þarna inn. Ég þori samt ekki að kvarta því margir hafa þurft að vera saman í herbergi, og ég hef þó þessi herlegheit alveg fyrir mig.
Nú er klukkan orðin 19.30 og litla skutlan sofnuð, rólegheitakvöld framundan með Helga svo fremi sem nýja tönnin valdi ekki svefnvandræðum hjá heimasætunni.
Ég býð góða nótt.....

þriðjudagur, 2. september 2008

Ofurframapotarinn


Merkur dagur í dag. Með eins dags fyrirvara tókst Helga að koma saman prýðis fyrirlestri, finna straujaða skyrtu, bruna til Hull og fara í mjööööööög langt viðtal.
Allt gekk vel og er hann nú orðinn Marie Curie Early Stage Research Fellow í tölvunarfræði. Mæting næsta mánudag. Húrra fyrir Evrópusambandinu og rannsóknarpeningunum þeirra!
Þá er næst að finna leikskóla fyrir Iðunni........

mánudagur, 1. september 2008

Loks komnar myndir


Þá eru loks komnar nýjar myndir af hringferðinni - enn er eitthvað eftir að setja inn í júlí og ágústalbúm næstu daga.

Þýskalandsferð

Engin myndavél fór með í ferð okkar um Þýskaland, þó ýmsir hafi tekið myndir af Iðunni meðan á henni stóð - m.a. túristar sem sáu hana og vildu mynda.
Þegar við komum á tannaráðstefnuna voru allir að spyrja hvernig gengi með tannmyndun Iðunnar, en þar sem engar voru tennurnar fengum við endalaus komment um að barnið væri nú aðeins á eftir áætlun í þessum efnum. Iðunn ætlaði nú ekki að láta hafa eftir sér að hún væri sein til neins og dreif sig því í að koma upp fyrstu tönninni LRDI1 (neðri framtönnin fyrir okkur hin) meðan á ráðstefnunni stóð. Enginn grátur eða verkir virðast fylgja þessari enn sem komið er, við vonumst bara til að góða skapið haldist áfram.
Að öðru leyti gekk allt vel - Iðunn fór í móttökur og matarveislur fram eftir öllum kvöldum; við skoðuðum húsdýragarðinn í Greifswald; og Iðunn heillaði alla uppúr skónum að venju.

Íslandsmyndir koma síðar í dag

Staðið í ströngu


Iðunn litla Helgadóttir er loksins komin heim til Barnard Castle eftir Íslandsdvöl með hringferð og fyrirlestraferð um Þýskaland. Margt hefur gerst á þessum tíma sem tekið verður saman i næsta pósti, en nýjustu fréttir eru þær að Iðunn hóf septembermánuð með upprisu - þ.e að reisa sig upp við rúmkantinn til að teygja sig í geisladisk ofan á kommóðunni sem henni leist vel á. Mér sýnist þessi dama ekki ætla að bíða með göngu til 18 mánaða aldurs.