
Eygló eldri frænka (til aðgreiningar frá Eygló yngri frænku, sem er 8 ára..bara svo að Eygló eldri móðgist nú ekki) getur varpað öndinni léttar því búið er að lækka rúmbotninn og koma upp fangelsi fyrir Iðunni. Henni þykir þetta allt óskaplega spennandi eins og er, en mig grunar að ljóminn fari af nýunginni um leið og rennur upp fyrir henni hve rýmið er lítið innan rimlanna.
Annars er lítið að frétta, nema að Donna bauð okkur í mat í kvöld til að skoða myndir úr Íslandsferðinni og hitta okkur öll á ný. Hún er enn jafn ánægð með ferðina þrátt fyrir að hafa hitt alla fjölskyldumeðlimi okkar...sem líklegast gefur til kynna hve hún er stabíl manneskja og jákvæð. Á morgun er svo fótbolti hjá Helga í fyrsta sinn í 6 vikur...mig grunar að hann verði ansi lúinn annað kvöld :-)
5 ummæli:
Mér er farið að finnast að það vanti hér matarsöguprógramsfrásagnir... Hvernig gengur að borða, hún Iðunn lítur allavega svo vel út, svo falleg og líkt og blómarós þannig að ég geri ráð fyrir að hún sé að taka matarkúrsinn upp á tíu.
Birgir Óli er að frussa öllu út úr sér núna og augun hans segja, Heyrðu mamma mín, ég á sko enga jaxla og ég ætla sko ekki að fara japla meira á einhverjum bitum! Vinsamlegast mixa fyrir mig!
Annars er hann ekki svo mikil kjötæta, finnst lax og sérstaklega avakadó það allra besta.
Þakka ykkur tillitsemina krakkar mínir,að særa ekki gamlar viðkvæmar frænkur?
Ef að Iðunni kippir í kynið lætur hún ekki einhverja rimla hefta sig lengi.
kveðja Eygló eldri 8+++....
Fyndnast að sjá hvað kötturinn er hróðugur yfir að hafa stelpuskömmina á vísum stað fyrir innan rimlana.
Þetta var amman í turninum, sem gleymdi að kynna sig.
Iðunn gerist meiri og meiri Gaflari eins og afi.
Skrifa ummæli