miðvikudagur, 3. september 2008

Rólegheit


Eftir mikið span síðustu vikur fékk litla skvísan loks dag í rólegheitum heima með pabba sínum. Við vonum að hún nái ansi mörgum slíkum áður en við skellum okkur til Barcelona í síðbúna brúðkaupsferð um miðjan mánuðinn - einungis 14 mánuðum og einu barni of seint! Vel þess virði samt því nú höfum við fengið skemmtilegasta ferðafélagann í Iðunni. Á meðan feðginin dóluðu sér heima fór ég í vinnuna og vann af kappi...fór svo og skoðaði nýju skrifstofuna mína (deildin flytur eftir 2 vikur), og uppgötvaði að þar eru ekki nema 6 heilar og 3 stuttar hillur.....u.þ.b. 75% minna hillupláss en ég er með sem stendur. Einnig að húsgögnin passa ekki inn á skrifstofuna - ég sé fyrir mér að það verður mikið púsl að flytja þarna inn. Ég þori samt ekki að kvarta því margir hafa þurft að vera saman í herbergi, og ég hef þó þessi herlegheit alveg fyrir mig.
Nú er klukkan orðin 19.30 og litla skutlan sofnuð, rólegheitakvöld framundan með Helga svo fremi sem nýja tönnin valdi ekki svefnvandræðum hjá heimasætunni.
Ég býð góða nótt.....

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, það er búið að vera mikið flandur á lítilli stúlku á stuttri ævi og bara rétt að byrja. Lán hvað hún er skapgóð og í góðu jafnvægi. Amman saknar hennar fjarska mikið, en huggar sig við að lesa bloggið og skoða myndirnar af lífinu í BC.

Einar Jón sagði...

Kæra Iðunn, Una og Helgi, I MISS YOU!!!!!
Eszter