föstudagur, 5. september 2008

Gul stígvél í mígandi rigningu


Hér rekur hver merkisdagurinn annan. Helgi er orðinn Marie Curie Fellow, og nú er komið að Iðunni að takast á við miklar breytingar. Eftir símhringingar og pælingar fundum við pláss fyrir hana á leikskóla sem heitir því ágæta nafni Yellow Wellies. Það var því viðeigandi að þegar við fórum að skoða leikskólann í dag var dæmigert stígvélaveður og gott betur......hér er varað við stórflóðum og Arkarsmíð í undirbúningi. Okkur leist öllum vel á skólann. Hann er í stóru gömlu húsi í Durham sem áður hýsti geðsjúklinga (tengsl okkar við læknastéttina haldast sterk að venju). Það er smá útivistarsvæði og krakkarnir hvattir til að vera úti í öllum veðrum (yfirleitt er útivera ekki á stundaskránni í breskum leikskólum), matur allur vistvænn og ekki ein einasta frönsk kartafla á matseðlinum. Einn starfsmaður á hverja þrjá krakka, og aðstaðan í alla staði góð. Lítur því allt út fyrir að Iðunn fari í þriggja daga aðlögun þegar við komum frá Barcelóna.
Helgi fór og fékk sér nýjan síma með ensku númeri...síminn hans nú er því (+44-7810080398). Öllu brösulegar gekk að fá sér bankareikning, þar sem engin önnur plögg eru tekin gild um búsetu en reikningar, sem hér eru allir í mínu nafni, svo nú er bara að ganga í að fá Helga á þá svo hægt sé að opna bankabók.
Annars allt bara fínt að frétta, allir lúnir eftir langa viku og tími til kominn að skríða í bælið.
Toodiloo...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta eru góðar fréttir, en á þá blessað barnið að fara að læra ensku og ekki búin að læra að segja amma? Hver á annars þessi flottu gulu stígvél?

Una sagði...

Þú verður bara að koma að kenna henni þetta. Þessi Jónulegu stígvél fann ég annars bara á netinu því rigningin var svo mikil að ég gat ekki tekið mynd af leikskólanum.

Einar Jón sagði...

Mér líst nú ekkert á það hvað allt er að verða kerlingarlegt fyrir hann Helga.
Býr með 2 konum og er orðinn Marie Curie Fellow...
Gátuð þið ekki fundið eitthvað karlmannlegra eins og Bruce Willis Fellow?

Nafnlaus sagði...

Enga öfund Einar minn
Þær laðast svona að honum konurnar. Ég held að kettirnir þeirra séu líka kvenkyns.

Einar Jón sagði...

Öfund? Ég er umkringdur af 20-70 konum á hverjum degi.
Ég hef bara áhyggjur af ástandinu...