
Merkur dagur í dag. Með eins dags fyrirvara tókst Helga að koma saman prýðis fyrirlestri, finna straujaða skyrtu, bruna til Hull og fara í mjööööööög langt viðtal.
Allt gekk vel og er hann nú orðinn Marie Curie Early Stage Research Fellow í tölvunarfræði. Mæting næsta mánudag. Húrra fyrir Evrópusambandinu og rannsóknarpeningunum þeirra!
Þá er næst að finna leikskóla fyrir Iðunni........
8 ummæli:
Flott hjá þér, sonur sæll. Til hamingju! Ég kalla þig góðan að finna straujaða skyrtu. Vonandi verður þetta skemmtilegt starf hjá þér. En mundu bara að þið ætlið að koma heim næsta sumar.
Ég held bara að amman verði að koma og passa stúlkuna.
Allar ömmur velkomnar hingað hvenær sem er!
PS komnar fleiri myndir í albúm
Til hamingju með þetta. Er Hull langt frá þar sem þið búið?
Til hamingju með þetta Helgi minn. Vel af sér vikið.Ég tek undir með Fanneyju. Ekki gleyma að Iðunn er búin að lofa ömmunum sínum að koma heim næsta sumar.
Takk takk,
Gaman að vera orðinn Research Fellow.
Nú vantar bara stimpil frá Evrópusambandinu um að ég uppfylli skilyrði.
Hull er 2 tíma akstur í suður frá BC.
Sennilega þarf ég samt ekki að fara þangað nema 1-2 sinnum í viku.
Til hamingju.
Þýðir þetta að Bjössi verður einn eftir á skerinu næstu árin?
Við stefnum enn á að koma heim næsta haust. Annars verða ömmurnar svo leiðar.
Það eru til peningar til að borga mér laun í 17 mánuði.
Það er jafnvel möguleiki á að ég klári þetta bara á Íslandi.
Það skiptir ekki öllu máli fyrir þá hvort ég er staðsettur í Barnard Castle eða Íslandi.
Við vitum samt ekkert hvernig þetta fer.
Skrifa ummæli