
Anna Lilja var að falast eftir matarbloggi. Þeir sem ekki hafa áhuga á matarvenjum ungbarna geta því hætt að lesa núna.
Nú, 9 mánaða, með 2mm af einni framtönn er Iðunn farin að borða ansi margt. Uppistaðan er nú kannski að mestu leyti grautar, mauk og brjóstamjólk, en hún vill ólm smakka allt sem foreldrarnir borða, og svo fremi sem það er ekki of salt eða sætt fær hún það. Þannig hefur hún smakkað og borðað ansi vel af reyktum laxi, sauerkraut, brauði, osti, melónum, ananas, grænmeti, pasta með ýmsum sósum, (sykurskerta versjón af) kartöflumús a la Lína, hrískökum og svo framvegis. Enn er lítið af mjólkurvörum á dagskrá, nema ostur og svo fékk hún skyr heima og jafnvel smakk af Brynjuís á Akureyri. Hún farin að fá maukaðar versjónir af kvöldmatnum og borðaði hún í kvöld hvorki meira né minna (sammaukað) en heilt kjúklingalæri, 1/2 ofnbakaða sæta kartöflu, og smá sneið af rauðlauk. Henni er nokk sama hvort kekkir séu í matnum svo fremi sem hún ráði við að koma matnum ofan í sig. Sem sagt, lítið matargat sem enn sem komið er er ánægð með flest sem henni býðst. Við erum voða fegin!
4 ummæli:
Þessi mynd er algjört deja vu af litlu matargati, sem var með gult nef af gulrótaáti og hefur reyndar aldrei verið matvönd, ef bananar eru undanskildir.
Almennilegt blogg, takk kærlega. Við stöndum hreinlega í stríði hér á þessu heimili, eða öllu heldur á leikskólanum. Birgi Óla líkar alls ekki maturinn þar og hvað þá heldur bitarnir.
Hérna heima er hann duglegur til að byrja með og en frussar svo og stórhneykslast á okkur að reyna að troða þessu ofan í hann. Samt er hann kominn með 8 tennur.
Hann fékk að prófa ís núna um dagin og þá gargaði minn maður á mig því ég var ekki nógu fljót að gefa honum ;)
Mikid se eg eftir ad hafad eytt 30 sekundum i lestur um matarvenjur ungbarna. Nuna er eg svong.
Ég var búin að vara þig við!
Skrifa ummæli