laugardagur, 6. september 2008

Nýju fötin feðginanna

Hér að ofan má sjá Helga Pétur (a.k.a. Blue Steel) í nýju peysunni sem keypt var á hann í bæjarferð. Iðunn sýnir nýjar sokkabuxur frá Marks & Spencer. Mig grunar að þrátt fyrir að Iðunn eigi svo sem nóg af fötum í sinni stærð verði ég að fara að kaupa fleiri þunn og lipur ullar- og flísföt til að bæta fyrir vetrar rakann hér í UK - hér er þegar orðið svo hráslagalegt inni sem úti að Iðunn fer í Janusgalla eða flíspeysu utan yfir náttfötin þegar hún fer fram úr fyrst á morgnana. Brrr.... ég er farin að sjá enn betur kostina við að búa á Íslandi - húsin heit og um fram allt þurr!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Fín og flott í nýju fötunum sínum.Þessi húskuldi í Bretlandi er náttúrulega einhvers konar þjóðarmasókismi. Ekki nema von að blessað fólkið í þessu landi sé hálf kyrkingslegt upp til hópa. 66 gr. norður bjargar málunum.

Sonja sagði...

Það eru ótrúleg lífsgæði að hafa heit hús.